• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samræmd próf í vor og niðurstöður einstakra grunnskóla birtar opinberlega

Samræmd próf í vor og niðurstöður einstakra grunnskóla birtar opinberlega

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum. Reglugerðin snýr annars vegar að nýju samræmdu prófunum í íslensku og stærðfræði sem allir nemendur í 4., 6. og 9. bekk grunnskóla gangast undir í fyrsta sinn nú í vor og hins vegar að safni valkvæðra matstækja Matsferils. Samræmda námsmatið, Matsferill, er miðlægt heildstætt safn matstækja í formi staðlaðra stöðu- og framvinduprófa, skimunarprófa og annarra matstækja sem kennarar og skólar geta nýtt sér í kennslu og við mat á stöðu og framvindu hvers barns í námi, jafnt og þétt yfir skólagönguna.

Samkvæmt reglugerðinni sem nú hefur verið kynnt í Samráðsgátt er stefnt að birtingu bæði árangurs nemenda á landsvísu sem og niðurstaðna einstakra grunnskóla.

Markmið Matsferils er að

  • veita upplýsingar um stöðu og framfarir nemenda,
  • meta árangur miðað við ákveðin hæfniviðmið aðalnámskrár,
  • styðja við skipulag kennslu og snemmtækan stuðning,
  • veita nemendum, foreldrum, skólum og menntayfirvöldum upplýsingar um námsárangur og námsframvindu nemenda,
  • veita samanburðarhæfar upplýsingar um stöðu grunnskóla, sveitarfélaga og skólakerfis í heild til stefnumótunar í námi og kennslu.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu annast framkvæmd Matsferils, vinnslu og varðveislu upplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Matið er lagt fyrir með rafrænum hætti. Niðurstöður samræmda námsmatsins skulu nýttar við skipulag náms og kennslu nemenda. Grunnskólar skulu fylgja eftir niðurstöðunum þannig að slíkt mat leiði til umbóta í skólastarfi og ber að gera skólanefndum sveitarfélaga árlega grein fyrir niðurstöðum og umbótum. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal jafnframt nýta niðurstöður til að styðja við skólastarf.

Niðurstöður skyldubundinna prófa verða gerðar aðgengilegar og birtar opinberlega, t.d. staða hvers skóla miðað við landsmeðaltal í skólum yfir ákveðnum nemendafjölda.

Í lögum samþykktum á Alþingi 16. júní 2025 var ráðherra heimilað að setja í reglugerð nánari ákvæði um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats. Drög að slíkri reglugerð eru hér kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda:

  • Drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda

Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur foreldra, kennara, skólastjórnendur, nemendur, aðra hagaðila og alla þá sem láta menntun barna sig varða til að veita endurgjöf.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?