Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar ætlað kynferðisbrot þar sem grunur leikur á að konu hafi verið byrluð ólyfjan á skemmtistað í Reykjanesbæ þannig að hún hafi ekki getað spornað við því að brotið væri gegn henni.
Þá hefur okkur borist af því spurnir að fleiri konur hafi lent í sömu aðstæðum á skemmtistöðum í umdæminu að undanförnu án þess að kærur hafi borist vegna þeirra tilvika.
Af þessu tilefni viljum við vekja athygli á þessum málum og hvetjum fólk til að sýna fyllstu aðgát en telja má víst að efnum sé blandað út í drykki fólks á skemmtistöðum með þessum afleiðingum.
Jafnframt beinum við því til starfsfólks á skemmtistöðum og gestum þessara staða að fylgjast vel með öðrum gestum, kalla eftir aðstoð lögreglu og aðstoða gesti eftir atvikum ef einhver grunur er uppi um lyfjabyrlun.