Heppin spilari var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmlega 9,7 milljónir króna. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu.
Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 70.980 kr. í sinn hlut. Fjórir miðanna eru í áskrift, einn var keyptur á lotto.is og einn miðinn var keyptur í Prinsinum, Hraunbæ 121 í Reykjavík.
Í Jókernumvar einn áskrifandi með 1. vinning og fær hann 2 milljónir króna í sinn hlut. Þá voru fjórir miðahafar með annan vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Þrír miðanna eru í áskrift en einn var keyptur í Olís á Akranesi.
Umræða