Loðnuleit grænlenska uppsjávarveiðiskipsins Polar Amaroq hafði ekki skilað neinum árangri síðdegis í gær. Skipið var þá statt út af Breiðafirði eftir að hafa siglt nær hringinn í kringum landið í leit að loðnu.
„Útkoman er eitt stórt núll,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, í umfjöllun um loðnuleitina í Morgunblaðinu í dag. Hann sagði að það væru vonbrigði, en ekki alveg óvænt. Ekki varð vart við vesturgöngu.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/02/26/med-rettu-aetti-ad-gefa-fiskveidar-innfjarda-frjalsar-segir-fiskifraedingur/
Umræða