Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, tók sæti á Alþingi í dag en hann tók sér leyfi vegna sonar síns, sem að fótbrotnaði í dráttarvélarslysi. Greint er frá endurkomu Gunnars Braga á vef Alþingis.
Gunnar Bragi greindi frá því í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir helgi að hann hygðist taka sér frí frá þingstörfum og að ástæðan væri vegna persónulegra mála. Slysið fékk mjög á Gunnar Braga en sonur hans er faðir og á þrjú ung börn en sonur hans rekur bú fyrir norðan.
Una María Óskarsdóttir, varaþingmaður Gunnars Braga, mun því víkja af þingi.
Aðalmenn taka sæti
Föstudaginn 12. apríl taka Guðlaugur Þór Þórðarson, Andrés Ingi Jónsson, Bergþór Ólason, Guðmundur Ingi Kristinsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sæti á ný á Alþingi.
Þá víkja af þingi varamenn þeirra; Albert Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Jón Þór Þorvaldsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Olga Margrét Cilia, Páll Valur Björnsson, Una Hildardóttir, Una María Óskarsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson.