Forsvarsmenn flugvallarins Heathrow segja að það sé nú keppist við að ráða 12.000 nýja starfsmenn því síðasti mánuður hafi verið sá annasamasti á flugvellinum síðan heimsfaraldurinn hófst fyrir meira en tveimur árum.
Yfirmenn Heathrow hafa viðurkennt að það sé mikið álag á fáa starfsmenn og að tafir hafi orðið á stærsta flugvelli Bretlands. Mars var annasamasti mánuðurinn á Heathrow síðan heimsfaraldurinn hófst, í kjölfar þess að stjórnvöld afléttu öllum ferðatakmörkunum sem eftir voru. Nú hafa yfirmenn vallarins sagt að nús að sé verið að ráða um 12.000 starfsmenn í skyndi, til að takast á við aukna eftirspurn eftir millilandaferðum fyrir sumarið.
Varað er við því að sumir dagar á þessu ári verði eins annasamir og fyrir heimsfaraldurinn og aukning í ferðalögum um páska hefur þegar valdið usla á helstu flugvöllum í Bretlandi. Þar sem miklar biðraðir mynduðust á Heathrow og Manchester.
Flugfélög hafa verið að endurbyggja afkastagetu fyrir sumarið og Heathrow vinnur náið með flugfélögum og flugrekendum til að tryggja að hægt sé að mæta þessari aukningu. Flugstöðin ætlar einnig að opna svæði númer fjögur aftur í júlí eftir að hafa lokað henni á fyrstu mánuðum heimsfaraldursins.