• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Jarðskjálftahrina á Reykjanesskaga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Töluverð jarðskjálftavirkni er á Reykjanesskaga en hún hófst með þriggja komma níu stiga skjálfta norðaustur af Reykjanestá þegar klukkan var tuttugu mínútur í tíu.

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Tæplega 630 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni, mest virkni var á Reykjanesskaga og þar mældust um 150 skjálftar í jarðskjálftahrinu í austanverðu Sýlingarfelli norðnorðaustan við Grindavík, þar mældust 2 skjálftar stærri en 3,0 að stærð og mældist þar stærsti skjálfti vikunnar af stærð 3,3 þann 3. apríl kl. 14:19, hann fannst í Grindavík.

Úti fyrir landi mældust einnig margir skjálftar einn af þeim var austan við landið, af stærð 2,7 og mældist hann við mörk landgrunns Íslands í um 110km austur af Dalatanga.

Reykjanesskagi

Um 350 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga í liðinni viku. Stærsti jarðskjálftinn mældist af stærð 3,3 þann 3. apríl kl. 14:19, hann mældist í austanverðu Sýlingarfelli um 4,5 km NNA af Grindavík. Þar varð stutt jarðskjálftahrina þann dag en það fór að draga úr jarðskjálftavirkninni þar sama kvöld og svo koðnaði hún niður um nóttina. Í viku 13 mældust þar um 150 skjálftar, tveir þeirra stærri en 3,0 að stærð og einn 2,9 að stærð. Tæplega 40 skjálftar mældust við Reykjanestá í vikunni fremur dreifðir, rúmir 40 við Fagradalshraun og aðrir tæpir 40 skjálftar umhverfis Kleifarvatn. Úti á Reykjaneshrygg mældust 5 jarðskjálftar 1 þeirra um 50km suðvestur af Reykjanestá, aðrir þrír mældust á Boðagrunni í um 80 km fjarlægð frá landi og sá fimmti mældist svo enn suðvestar á Reykjaneshryggnum í um 350km suðvestur af Reykjanestá.

Suðurland

Tæplega 70 jarðskjálftar mældust á Suðurlandi í vikunni. Stærsti skjálftinn var 1,9 að stærð 2. apríl um 7km austan við Selfoss. Um 50 skjálftar mældust á Hengilssvæðinu í vikunni; þar var þyrping skjálfta í Reykjarfjalli austan Hveragerðis. Aðrir skjálftar dreifðust um Suðurlandsbrotabeltið. Enginn skjálfti mældist við Heklu í vikunni.

Norðurland

Rúmlega 130 jarðskjálftar voru staðsettir á Norðurlandi í liðinni viku, flestir úti fyrir landi. Norðaustan við Grímsey voru 35 jarðskjálftar staðsettir, sá stærsti 2,6 að stærð. Um 20 skjálftar mældust í Öxarfirði, sá stærsti 2,1 að stærð. Fimm aðrir smáskalftar mældust á Grýmseyjarbeltinu. Á utanverðum Skjálfanda mældust tæpir 20 jarðskjálftar allir undir 2,0 að stærð og vestast á Húsavíkur ¿Flateyjarmisgenginu mædust aðrir 5 skjálftar einnig smáir. Rúmir 20 skjálftar mældust í þyrpingu á Eyjafjarðarál sá stæsti þar mældist 2,3 að stærð, einn skjálftin var utar af stærð 1,7. Fjórir skjálftar mældust langt fyrir norðan land um 130km norður af Kolbeinsey og voru þeir milli 2,5 og 3,0 að stærð. Á landi mældist 1 skjálfti á Tröllaskaga 1,4 að stærð. Rúmur tugur smáskjálfta mældust við Kröflu og um 5 skjálftar við Þeistareyki. Í Kelduhverfi mældust 4 smákskjálftar.

Hálendið

Um 30 skjálftar mældust undir Vatnajökli í liðinni viku. Stærsti skjálftinn var 2,4 að stærð í Bárðarbungu þann 3. mars kl. 19:14. Í berggangingum svokölluðum rétt austan Bárðabunguöskjunnar voru staðsettir tæpir 15 jarðskjálftar allir undir 1,0 að stærð. Fimm smáskjálftar mældust í Grímsvötnum sömuleiðis allir undir 1,0 að stærð. Við Vestari Skaftárketilinn mældust 4 skjálftar, sá stærsti 2,1 að stærð. Nokkrir smáskjálftar mældust við Hamarinn. Norðan Vatnajökuls var fremur róleg virkni, tveir jarðskjálftar mældust norðan við Öskju og rúmur tugur skjálfta mældust umvherfis Herðubreið og Herðubreiðartögl.

Vesturland

Á Vesturlandi mældist einn skjálfti í Gjavdal vestan Grjótárvatns af stærð 2,4. , einn skjálfti mældist í Stafhlotstungum um 6km norðan við Kleppjárnsreyki 1,6 að stærð.

Mýrdalsjökull

7 jarðskjálftar mældust við Kötluöskjunna í vikunni, stærsti skjálftinn mældist 1,2 að stærð. Það mældust 2 skjálftar undir 1,0 að stærð mældust í hlíðum Eyjafjalla og einn sunnan Kötlu í Klofningunum. Á Torfajökulssvæðinu mældust 3 smáskjálftar.

Nánar er hægt að skoða skjálftavirkni á landinu í Skjálfta-Lísu

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?