• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Úrskurður vegna stjórnsýslukæru – innflutningur á fjórum hundum

Matvælastofnun kærir innflutning á hundum til lögreglu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Matvælastofnun hefur sent þrjár kærur til lögreglu vegna ólöglegs innflutnings á hundum

Um er að ræða þrjú aðskilin tilvik þar sem ferðamenn komu í andstöðu við lög um innflutning dýra með hunda sína til landsins í farþegarými flugvéla. Flutningur hundanna til landsins uppgötvaðist ekki fyrr en Matvælastofnun barst tilkynning frá yfirvöldum á Keflavíkurflugvelli þegar ferðamennirnir hugðust innrita sig í flug frá landinu eftir nokkurra daga dvöl með hunda sína.

Matvælastofnun heimilaði ekki brottför fyrr en hundarnir höfðu undirgengist heilbrigðisskoðun og sýnatökur á kostnað eigenda. Í einu tilvikanna greindist sníkjudýr sem ekki hefur greinst hérlendis áður. Samkvæmt þeim upplýsingum sem stofnunin hefur var hundurinn ekki í samskiptum við önnur dýr á tíma sínum hérlendis og vegna þess hversu kalt var í veðri telur stofnunin ólíklegt að ormar/egg hafi lifað af, hafi eigandi ekki hirt eftir hundinn.

Samkvæmt lögum um innflutning dýra er óheimilt að flytja til landsins hvers konar dýr og erfðaefni þeirra. Ástæðan fyrir þessu banni er sú að vernda þau dýr sem fyrir eru í landinu og sömuleiðis mannfólk fyrir smitandi sjúkdómum og sníkjudýrum sem geta borist með innflutningi dýra. Einungis er heimilt að víkja frá banni við innflutning að uppfylltum ströngum skilyrðum og skv. sérstöku leyfi Matvælastofnunar. Í lögunum segir að það verði viðkomandi fjársekt ef brotið er gegn ákvæðum laganna.

Matvælastofnun lítur ólöglegan innflutning á dýrum alvarlegum augum, enda gilda um innflutninginn strangar reglur vegna áhættu á því að hingað berist dýrasjúkdómar og vísaði málunum til lögreglu.

Með nýlegri breytingu sem gerð var á reglugerð um innflutning hunda og katta, þess efnis að ekki verður lengur heimilt að flytja hunda og ketti í farþegarými flugvéla, er ætlunin að girða fyrir svona ólöglegan innflutning dýra þar sem farþegar hafa geta komist óáreittir með dýr sín í flug til Íslands og í gegnum Keflavíkurflugvöll.

Ítarefni:

  • Óheimilt að flytja hunda og ketti til Íslands í farþegarýmum flugvéla
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    136 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?