• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Stjórnvöld verða að standa með þolendum mansals

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Rúmar fimm vikur eru liðnar frá aðgerðum lögreglu þann 5. mars sl., þegar veitingastöðum í eigu Davíðs Viðarssonar var lokað og þau skilaboð gefin út til ætlaðra þolenda að framtíð þeirra á Íslandi yrði tryggð.

Nú í vikunni kynntu stjórnvöld loksins fyrir ætluðum þolendum útfærslu sína á því sem skiptir fólkið mestu fyrir framtíð þeirra á Íslandi, þ.e.a.s. hvaða dvalar- og atvinnuleyfi standa þeim til boða.

Með útfærslu stjórnvalda er einungis hluta hópsins tryggð öll þau sömu réttindi og þau höfðu fyrir 5. mars, það er framhaldandi rétt til fjölskyldusameiningar og óskertan rétt til að sækja um ótímabundið dvalarleyfi.

Sá hluti hópsins sem ekki er kominn í nýtt starf fer hins vegar, að óbreyttu, á svokallað umþóttunarleyfi fyrir þolendur mansals, að mánuði liðnum. Fólki er með öðrum orðum gefinn frestur til 15. maí til að finna nýtt starf, að öðrum kosti fara þau á síðra dvalarleyfi en þau voru á þann 5. mars og í einhverjum tilfellum er fyrirhuguð fjölskyldusameining í uppnámi.

Útfærsla stjórnvalda í málinu er undirrituðum mikil vonbrigði. ASÍ hefur um langt skeið bent á mikilvægi þess að í málum sem þessum sé framtíð ætlaðra þolenda tryggð og í því samhengi skiptir höfuðmáli að réttindi þolenda hvað varðar dvalar- og atvinnuleyfi verði ekki lakari en þau voru áður en ráðist var í aðgerðirnar.

ASÍ hefur ítrekað gert grein fyrir þessum sjónarmiðum frá því að málið kom upp, m.a. á fundum með dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra. Framangreind sjónarmið byggja m.a. á hinum ýmsu skýrslum og meðmælum alþjóðastofnana og sérfræðinga um hvernig best sé að haga viðbrögðum er upp koma vinnumansalsmál. Sjónarmið sem byggja á sérstaklega flóknu eðli slíkra afbrota. Hér skiptir öllu að stjórnvöld standi með þolendum.

Um er að ræða fólk sem hefur lagt á sig miklar fjárhagslegar og sálrænar fórnir til að geta búið sér og fjölskyldum sínum trygga framtíð á Íslandi. Fólkið kom til Íslands eftir að hafa selt allar eigur sínar í heimalandinu, með draum um að leggja hart að sér í vinnu og skapa sér bjartari framtíð.

Að mati undirritaðra er fyrirliggjandi niðurstaða stjórnvalda afleit. Verði henni ekki breytt og sanngjarnt tillit tekið til stöðu og hagsmuna þess fólks sem málið varðar eru allar líkur á að til lengri tíma verði þolendur vinnumansals ekki tilbúin til samstarfs við að upplýsa mál sem varða skipulagða brotastarfsemi í landinu. Því verður ekki trúað að vilji stjórnvalda sé sá að gefið verði eftir í baráttu gegn svo alvarlegum lögbrotum.

Með vísan í allt framangreint skora undirrituð á stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína, standa með þolendum og gera betur.

 

Saga Kjartansdóttir,
sérfræðingur á lögfræði- og vinnumarkaðssviði

Halldór Oddsson,
sviðsstjóri lögfræði- og vinnumarkaðssviðs

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    136 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?