Nú hefur SÁÁ tekið ákvörðun um að sinna ekki einum hópi fíkla. Þetta er sá hópur sem hefur sennilega verst orðið úti vegna misnotkunar fíkniefna og hlotið dóm fyrir, sem afplána hefur þurft í fangelsi. Fyrir vikið er nú m.a. hópur fanga sem er fastur í fangelsi, því framgangur í kerfinu er skilyrtur því að viðkomandi fari í meðferð – áður en hann losnar.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu
Undanfarinn mánuð hefur minnst einn í viku hverri látist sem ég þekkti, eftir að hafa kynnst honum í fangelsi. Orsökina má meðal annars rekja til úrræðaleysis gagnvart vanda þessara einstaklinga.
Þegar SÁÁ ákvað að hætta að þjónusta fanga sendi ég bæði fangelsisyfirvöldum og SÁÁ erindi þar sem ég leitaði skýringa. Svörin sem ég fékk voru að uppi væri krafa um aukin fjárframlög til SÁÁ, auk þess sem ekki væri valdir nægjanlega hentugir fangar til að veita aðstoð með meðferð að lokinni afplánun. Þrátt fyrir að ég hafi óskað ítarlegri svara frá formanni SÁÁ, hafa þau ekki borist.
Rétt er að taka fram að SÁÁ fær myndarlegar greiðslur frá ríkinu ár hvert til að standa undir starfseminni. Fyrir mér lítur staðan út sem einhvers konar fjárkúgun, þar sem ríkisvaldinu er stillt upp við vegg til að auka fjárframlög.
Á meðan sitja hin raunverulegu fórnarlömb aðgerðarleysisins hjá, og líða fyrir – jafnvel með lífi sínu. Réttast væri að hið opinbera stöðvaði, nú þegar í stað, öll opinber framlög til SÁÁ. Staðan er einfaldlega grafalvarleg – og ólíðandi!
formadur@afstada.is Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu
https://gamli.frettatiminn.is/2018/01/03/gratbad-um-salfraediadstod-tvaer-vikur-fyrir-sjalfsvigid/