Hugleiðingar veðurfræðings
Kalt loft streymir yfir landið og nú í morgunsárið er víða ansi vetrarlegt um að litast. Í dag verða norðaustan og norðan 8-15 m/s og allvíða snjókoma eða slydda, en hægari vindur sunnanlands fram eftir degi og skúrir eða él. Á vegum norðan- og austanlands má því víða búast við vetraraðstæðum, einkum á fjallvegum. Hiti 0 til 7 stig, mildast sunnantil. Það dregur úr ofankomu í kvöld. Hægari norðlæg átt á morgun, en strekkingur austast á landinu fram eftir degi. Dálítil él á norðanverðu landinu með hita nálægt frostmarki, en sunnan heiða verður bjart að mestu og hiti 3 til 8 stig yfir daginn, en þar eru þó líkur á einhverjum síðdegisskúrum.
Veðuryfirlit
Milli Íslands og Noregs er 986 mb lægð sem hreyfist lítið. 120 km S af Ingólfshöfða er 990 mb lægð sem fer ANA, en yfir N-Grænlandi er 1017 mb hæð.
Samantekt gerð: 12.05.2022 08:05.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan og norðan 8-15 m/s og allvíða snjókoma eða slydda, en hægari vindur sunnantil fram eftir degi og skúrir eða él. Hiti 0 til 7 stig. Dregur úr úrkomu í kvöld. Norðlæg átt 5-10 á morgun, en 10-15 austast á landinu fram eftir degi. Dálítil él á norðanverðu landinu með hita nálægt frostmarki. Bjart að mestu sunnan heiða og hiti 4 til 9 stig yfir daginn, en líkur á stöku síðdegisskúrum.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg norðvestlæg átt og stöku skúrir eða slydduél, en norðan og norðaustan 5-13 m/s seinnipartinn. Léttir til í nótt. Hiti 3 til 7 stig að deginum.
Norðaustan 3-10 og bjart að mestu á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Austlæg átt 5-13 og rigning með köflum, en úrkomuminna á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi, hiti 2 til 9 stig eftir hádegi, mildast á Suðurlandi.
Á sunnudag:
Suðlæg átt 3-10 og súld eða dálítil rigning með köflum, en léttir til um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 14 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt, skýjað með köflum og lengst af þurrt. Milt í veðri, einkum vestanlands.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir áframhaldandi milda austlæga átt með vætu á köflum.