• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 2. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Varðskip rekur strandveiðibáta í land

Sérmeðferð á strandveiðimönnum - 48 dagar verði lögfestir án stöðvunar

ritstjorn by ritstjorn
13. maí 2023
in Fréttir, Innlent, Uncategorized
0
Varðskip rekur strandveiðibáta í land
Share on FacebookShare on Twitter

Strandveiðar hófust nú um mánaðarmótin og veiðar hafa almennt gengið vel. Menn eru sumir lengi að ná skammtinum og ná honum jafnvel ekki á þeim 14 klukkutímum sem veiðar eru heimilaðar á hverjum degi, frá því að bátur leggur frá bryggju. Sumir eru fáa klukkutíma að ná í skammtinn þegar vel gefur, sem eru aðeins 774 kg. af þorski. Þá hefur verið ágætis ufsaveiði og sjómaður sem Fréttatíminn ræddi við sagði að hann hefði náð einu og hálfu kari af ufsa sem meðafla. ,,Sjórinn er fullur af æti og sjaldan sést eins góð staða og fiskurinn er fullur af sandsíli og er því latur sumstaðar við að taka krókana hjá strandveiðisjómönnum.“  

Reknir í land

Umhverfisvænasta veiðiaðferð í heimi – Skapar fjölda starfa um allt land

Í gær var varðskip á fiskislóð og hafði eftirlit með strandveiðibátum, nokkrir strandveiðibátar voru reknir í land, þar sem skráðir eigendur voru ekki um borð í bátunum. Almennt eftirlit Landhelgisgæslunnar er öflugt og fengu þessir strandveiðisjómenn að kynnast því. ,,Það er öryggi í því að vita af gæslunni nálægt þessum smábátum sem eru að berjast við að ná þessum dögum í öllum veðrum sem býður hættunni svo sannarlega heim.“

Sérmeðferð á stranveiðimönnum

Sjómenn sem stunda strandveiðar, fá aðeins greitt fyrir 80% af verði ufsans en 20% renna í ríkissjóð. ,,Á meðan við borgum heil 20% af aflaverðmæti til ríkissjóðs, er stórútgerðin að borga brota brot af aflaverðmætum til samfélagsins eins og marg oft hefur komið fram undanfarin ár. Er ekki rétt að stórútgerðin borgi sama hlutfall af aflaverðmæti til samfélagsins eins og strandveiðiflotinn býr við að þurfa að gera. Er ekki rétt að stórútgerðin og togararnir fái sömu kjör hjá ríkisstjórninni?“

,,Það mætti í leiðinni hólfaskipta landinu fyrir stórútgerðina, togara og stærri skip og aðeins heimila þeim að vera 14 klukkustundir á sjó í róðri eins og strandveiðibátar verða að þola.“ Segir sjómaður sem stundar strandveiðar.

48 dagar verði lögfestir án stöðvunar

,,Það er eina vitið að 48 dagar verði lögfestir án stöðvunar og menn fái bara að vera á þeim svæðum sem þeir kjósa að vera á og fiska þann tíma. Brælur og viðgerðarstopp og fleira sér alveg um að við getum ekki stundað veiðarnar lengur enda eru þetta smábátar á handfæraveiðum. Ráðamenn verða að átta sig á því að handfæraveiðar eru umhverfisvænasta veiðiaðferð í heimi og skapar fjölda starfa um allt land og fiskur kemur nýr og ferskur til vinnslu oftast í gegnum fiskmarkaði. Við erum ekkert að braska með aflaverðmætin í erlendum skúffufyrirtækjum, „söluskrifstofum“ í skattaparadís til að fela verðmætin.“

Umhverfisvænasta veiðiaðferð í heimi

Discussion about this post

  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?