Almenningur á Íslandi gaf Ísrael 8 stig í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
12 stig fóru til Króatíu sem var spáð sigri í veðbönkum. Frakkland var næst á eftir með 10 stig.
Svíþjóð fékk 7 stig frá Íslendingum en sigurvegari keppninnar, Nemo frá Sviss, fékk 6 stig.
Úkraína fékk 5 stig, Litháen 4, Írland 3, Þýskaland 2 og Finnland 1.
Umræða