• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Alþingi lagði Kjararáð niður í gærkvöld

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

Alþingi samþykkti í gærkvöld að leggja kjararáð niður

Formaður Miðflokksins gagnrýndi vinnubrögð ríkisstjórnarinnar og sagði að ekkert sé vitað hvað taki við, þegar að Kjararáð hefur nú verið lagt niður. Meirihluti nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd alþingis lagði fram frumvarp þar sem lagt var til að lögin um kjararáð falli úr gildi þann 1. júlí n.k. 

Ekki liggur fyrir hvort að úrskurðir Kjararáðs um tuga prósenta hækkanir ofan á ofurlaun undanfarin misseri verði felldir úr gildi en mikil óánægja hefur verið í þjóðfélaginu vegna gífurlegra hækkana Kjararáðs á launum sumra stétta í efri lögum þjóðfélagsins. M.a. hafnaði Forseti Íslands því að taka við launahækkun Kjararáðs þar sem að hún braut gegn siðferðiskennd hans. Ekkert hefur komið fram um hvernig eða hvort leiðréttingar verði gerðar.

Formaður kjararáðs var Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Landsvirkjunar. 

Kjararáð var skipað fimm mönnum og fimm til vara. Þrír eru kosnir af Alþingi, Hæstiréttur skipar einn og fjármála- og efnahagsráðherra einn. Sömu aðilar velja vararáðsmenn. Ráðið kýs sér sjálft formann og varaformann úr hópi aðalmanna. Kjararáðsmenn skulu skipaðir til fjögurra ára í senn.
Jónas Þór Guðmundsson hefur sterk tengsl við Sjálfstæðisflokkinn og skemmst er þess að minnast er hann sem formaður sendi beiðni til þáverandi fjármálaráðherra, Benedikts Jóhannessonar um afturvirka launahækkun fyrir sig og aðrameðlimi Kjararáðs um hækkanir á launum þeirra og það m.a.s. afturvirkt. Benedikt hafnaði því alfarið.
Það var aftur á móti fyrsta verk Bjarna Benediktssonar er hann settist í stól forvera síns í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, að verða við bón Jónasar félaga síns og hækkaði laun Kjararáðs um 7.3 prósent, afturvirkt frá 1. ágúst 2017.
Aðalmenn í Kjararáði voru :
Jónas Þór Guðmundsson, formaður, kosinn af Alþingi
Óskar Bergsson, varaformaður, kosinn af Alþingi
Svanhildur Kaaber, kosin af Alþingi
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, skipaður af Hæstarétti, lét af störfum 5. júlí 2017
Jakob R. Möller, skipaður af Hæstarétti frá og með 5. júlí 2017
Hulda Árnadóttir, skipuð af fjármála- og efnahagsráðherra
Varamenn:
Eva Dís Pálmadóttir, kosin af Alþingi
Örlygur Hnefill Jónsson, kosinn af Alþingi
Ingibjörg Ingadóttir, kosin af Alþingi
Berglind Svavarsdóttir, lögmaður, skipuð af Hæstarétti
Þórlindur Kjartansson, skipaður af fjármála- og efnahagsráðherra
Kjararáð er sjálfstætt ráð sem er falið það verkefni að ákveða laun og starfskjör æðstu embættismanna ríkisins. Í þeim hópi eru alþingismenn, ráðherrar, dómarar, saksóknarar, sendiherrar, ráðuneytisstjórar, skrifstofustjórar sem fara með fyrirsvar fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðherra við gerð kjarasamninga, forsetaritari, seðlabankastjóri, aðstoðarseðlabankastjóri, ríkissáttasemjari og nefndarmenn úrskurðarnefnda í fullu starfi. Ákvörðun um laun og starfskjör biskups, vígslubiskupa, prófasta og presta þjóðkirkjunnar heyrir undir kjararáð þar til samkomulag hefur náðst við þjóðkirkjuna um nýtt launafyrirkomulag. Þá segir í bráðabirgðaákvæði með hinum nýju lögum að málum sem við gildistöku laganna hafa verið tekin til meðferðar skuli lokið samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/2006.
Eftirtaldir heyra undir úrskurðarvald kjararáðs um laun og starfskjör:
Forseti Íslands, Alþingismenn, Ráðherrar, Dómarar , Saksóknarar, Ráðuneytisstjórar, Sendiherrar, Forsetaritari, Seðlabankastjóri, Aðstoðarseðlabankastjóri, Ríkissáttasemjari. Skrifstofustjórar sem heyra undir ráðherra sem fer með starfsmannamál ríkisins og fara með fyrirsvar fyrir hönd ráðherra við gerð kjarasamninga
Nefndarmenn yfirskattanefndar, úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, kærunefndar útlendingamála og úrskurðarnefndar velferðarmála sem eru í fullu starfi. Dómarar í Félagsdómi, sbr. 1. mgr. 66. gr. laga nr. 80/1938
Biskup Íslands, vígslubiskupar, prófastar og prestar heyra undir ákvörðunarvald kjararáðs samkvæmt bráðabirgðaákvæði þar til samkomulag hefur náðst við þjóðkirkjuna um nýtt launafyrirkomulag

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?