Síðdegis á laugardag óskaði slökkviliðsstjórinn í Grindavík eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna elds sem logaði í djúpum mosa austan Djúpavatns við Lækjarvelli. Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var send til að aðstoða við slökkvistarf og hefta útbreiðslu eldsins. Slökkvilið Grindavíkur barðist við eldinn en erfiðlega reyndist að koma slökkvibílum að vettvangi.
Áhöfnin á þyrlunni lenti við Kleifarvatn þar sem slökkviskjólan var gerð klár og hengd undir vélina. Að því búnu var hún fyllt af vatni og flogið með hana sjö ferðir að eldinum. Greiðlega gekk að hefta útbreiðsluna og slökkva eldinn.
Samskipti áhafnar, slökkviliðsmanna og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar gengu afar vel fyrir sig og lauk aðgerðum þyrlunnar á tíunda tímanum um kvöldið. Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar hafa nokkrum sinnum í sumar æft viðbrögð við gróðureldum þar sem slökkviskjólan er notuð. Áhöfnin á TF-LIF tók mynd úr lofti af svæðinu eftir að slökkvistarfi lauk en græna slikjan sýnir svæðið þar sem vatn fór á óbrunninn mosann og hefti útbreiðslu eldsins.
TF-LIF á æfingu fyrr í sumar með slökkviskjóluna.