• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Staða biðlista á leikskóla

Ungbarnaleikskólinn Bríetartúni - Reykjavíkurborg

Staða biðlista á leikskóla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. september 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Þann 1. september 2023 voru samtals 658 börn 12 mánaða og eldri á biðlista eftir leikskólaplássi í borgarrekna leikskóla. Til viðbótar eru 67 börn að bíða eftir flutningi úr sjálfstætt starfandi leikskóla.

Áætlað er að um 180-200 börn 12 mánaða og eldri frá 1. september séu ekki með dagvistun, að stórum hluta til eldri börn sem eru nýkomin á biðlista eftir leikskóla í Reykjavík.

Aðlögun í bæði borgarrekna og sjálfstætt starfandi leikskóla er í fullum gangi. Börnin byrja í aðlögun eftir skipulagi, oft elstu börnin fyrst og svo eru börnin tekin inn eftir aldri og eftir því sem nýráðið starfsfólk hefur störf.

Mörg með vistun annarsstaðar en í borgarreknum leikskólum

Meðal þeirra barna sem eru á biðlistanum eru um 120 börn sem eiga eftir að fá úthlutað plássi hjá sjálfsstætt starfandi leikskóla í borginni. Börn sem eru að fara að hefja vistun í sjálfstætt starfandi leikskólum en eru á biðlista eftir borgarreknum leikskólum detta ekki út af biðlistanum fyrr en vistun hefst. Þá eru í dag 375 í vist hjá dagforeldrum, og flest þeirra eru á biðlista eftir leikskólaplássi.

Það er alltaf ákveðin keðjuverkun í vistunarmálum barna á leikskólaaldri en þegar pláss býðst í borgarreknum leikskóla losna gjarnan pláss á móti hjá sjálfsstætt starfandi skólum og hjá dagforeldrum sem bjóðast þá öðrum börnum. Þá er mikil hreyfing á listum þegar fjölskyldur flytja á milli bæjarfélaga. Þá munu bætast við pláss hjá borgarreknum jafnt sem sjálfstætt starfandi skólum þegar viðgerðum og endurbótum á húsnæði lýkur og þegar nýtt skólahúsnæði er opnað.

Vert er að hafa í huga að 2021 er sérlega stór árgangur (einungis árgangur 2009 er stærri) og 2017 árgangurinn sem var að hefja göngu sína í 1. bekk er minnsti árgangurinn í grunnskólum borgarinnar. Stærðarmunur árganganna sem voru að fara í skóla og þeirra sem eru að koma inn er tæplega 300 börn.

Umræða
Share6Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Líkfundur

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?