Sprengjum hefur rignt yfir Kiev höfuðborg Úkraínu síðastliðin sólahring. Þar á meðal lenti ein sprenging á leik- völl sem er einn kílómeter frá skrifstofu Barnaheilla Í Úkraínu.
,,Við fundum jörðina skjálfa,“ sagði starfsmaður Barnaheilla í Úkraínu.
,,Fréttamyndirnar sem okkur hafa borist frá Kiev þar sem leikvellir barna hafa verið sprengdir upp eru óhuganlegar og sýna okkur að börnin eru hvergi hult þegar kemur að stríði. Skilaboð Barnaheilla – Save the Children á Íslandi eru einföld:
Ekki sprengja börn! Við hjá Barnaheillum styðjum við börn í neyð víðsvegar um heiminn með því að safna fé í viðbragðssjóð alþjóðasamtaka Barnaheilla. Þeir fjármunir nýtast meðal annars til að styðja við börn í Úkraínu,” segir Ellen Calmon framkvæmdastýra Barnaheilla um neyðarsöfnun Barnaheilla.
Á undanförnum dögum hefur fjöldi hjálparstofnana neyðst til að stöðva starfssemi sína í Úkraínu vegna öryggisógnar starfsfólks. Í borgunum Kyiv, Lviv, Ternopil og Dnipro hefur rignt sprengjum og hafa að minnsta kosti 11 almennir borgarar látið lífið og 89 særst.
Heimili, skólar, göngubrýr og leikvellir hafa orðið fyrir sprengjum og mikið tjón hefur orðið á innviðum sem hefur leitt til ragmagnsleysis og truflana á vatni. Nú fer að kólna í Úkraínu og hafa þessar árásir áhrif á undirbúning heimilanna fyrir veturinn sem getur reynst kaldur.Barnaheill krefjast þess að alþjóðleg mannúðarlög séu virt til þess að vernda börn gegn átökum. Árásir sem þessar stríða gegn alþjóðlegum stríðslögum.
Neyðarsöfnun: https://www.styrkja.is/barnaheillneydarsofnun