• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Maðurinn sem féll í Núpá er enn ófundinn

ritstjorn by ritstjorn
12. desember 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Uppfært kl. 06.00:
Maðurinn sem féll í Núpá er enn ófundinn. Nú eru 43 leitarmenn á 17 tækjum að störfum á vettvangi. Þar af eru 4 kafarar og einn læknir. Þá er einnig einn leitarhundur á staðnum. Aðstæður á vettvangi eru erfiðar vegna myrkurs og veðurs en gengið hefur verið með ánni í leit að manninum auk þess sem kafarar eru að leit á völdum stöðum. Á vettvangi gengur á með éljum þannig að ekki hefur verið unnt að beita þyrlu LHG við leitina.
Óskað hefur verið eftir aukamannskap af öðrum svæðum til að aðstoða við leitina og er önnur þyrla LHG á leiðinni norður með 10 manna hóp, sem er sérhæfður í straumvatnsbjörgun. Reiknað er með þyrlunni á Akureyri kl. 04:00. Aðgerðarstjórn almannavarna á Akureyri var mönnuð vegna verkefna sem tengjast óveðrinu og er aðgerðum vegna þessa máls stjórnað þaðan.
Tilkynnt um slysið í gær
Laust fyrir kl 22:00 barst Lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að maður hefði fallið í Núpá sem er í Sölvadal inn af Eyjafirði. Þarna voru tveir menn að vinna við stíflu sem er í ánni þegar krapagusa hreif annan manninn með sér.

Þegar var allt tiltækt lið björgunarsveita sent á vettvang ásamt lögreglumönnum og lækni. Erfiðlega gékk að komast á vettvang vegna ófærðar og þurfti að fá snjóruðningstæki til að fara á undan. Einnig var kölluð til þyla frá Landhelgisgæslunni og með henni koma fjórir kafarar.

Erfiðlega gekk að ná aftur sambandi við tilkynnanda á vettvangi vegna aðstæðna. Björgunarsveitarmenn á vélsleðum voru fyrstir á staðinn og hófu upplýsingaöflun og leit.
Þyrla LHG ert rétt um það bil að lenda við vettvang og björgunarsveitarmenn eru að leita með ánni. Þá er verið að ræða við aðstandendur mannsins sem er týndur. Á þessari stundu er ekki unnt að veita frekari upplýsingar

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?