Eyþór Arnalds lét að því liggja í Silfri Egils í dag að Píratar ,,sem að gefa sig út fyrir að vilja hafa allt upp á borðum og takast á við spillingu í stjórnkerfinu.“ Væru jafnvel að taka þátt í að hylma yfir meintum lögbrotum, með meirihlutanum í borgarstjórn. Dóra Björt, borgarfulltrúi Pírata neitaði því að tölvugögnum hefði verið eytt sem að vörðuðu rannsókn á braggamálinu. ,,Hélt að Dóra hefði lesið skýrsluna en svo virðist ekki vera. Trúi því ekki að hún hafi vísvitandi farið með rangt mál.“ Sagði Eyþór Arnalds.
,,Því var m.a. hafnað af hálfu meirihlutans að borgarskjalavörður kæmi á fund borgarráðs til þess að útskýra málið sem að snéri að meintu hvarfi tölvupósta. En í skýrslu Innri endurskoðunar, á bls. 75-77 kemur fram að tölvupóstum og afritum hefur verið eytt.“ Segir Eyþór Arnalds um málið.
,,Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir að fá eitt mikilvægt mál á dagskrá; skjalavörslu sem hefur verið brotakennd enda er staðfest í skýrslu Innri endurskoðunar að lög voru brotin í þessum efnum. Skjöl finnast ekki og gögnum hefur verið eytt. Það er því ekki af ástæðulausu sem við óskuðum eftir að borgarskjalavörður kæmi á fund borgarráðs.
Ég átti von á því að við gætum verið sammála um að óreiða hafi verið á málum varðandi braggann, en værum ósammála um framhaldið. Í stað þess fór Dóra Björt að halda því fram að við værum með rangfærslur. Ég neyddist því til þess að lesa orðrétt upp úr skýrslunni varðandi skjalamál og tölvupósta. Hélt að Dóra hefði lesið skýrsluna en svo virðist ekki vera. Trúi því ekki að hún hafi vísvitandi farið með rangt mál.
Auk þess var leigusamningurinn sem var undirritaður af borgarstjóra aldrei borinn undir borgarráð aðeins minnispunktar. Auk þessa lögðu Sjálfstæðismenn til þann 1. desember 2015 að ekki væri sett meira fjármagn í braggaverkefnið. Sú tillaga var felld með atkvæðum Samfylkingar, Pírata, VG og Bjartrar framtíðar. Það er því vægast sagt langt seilst að gera borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í minnihluta ábyrga fyrir klúðrinu.
Hér má svo lesa skýrslu Innri endurskoðunar, en á bls. 75-77 kemur fram að tölvupóstum og afritum hefur verið eytt.
https://reykjavik.is/…/ie18100002_-_nautholsvegur_100_-_201…
Hér má síðan finna skýrslu Borgarskjalasafns frá 2018 þar sem bent er á og varað við í meðferð skjala hjá borginni – ennfremur lög og reglur.
http://www.borgarskjalasafn.is/desktopdef…/…/6634_read-40208 Hafa skal það sem sannara reynist.“ Segir Eyþór Arnalds um braggamálið.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/01/10/vilja-visa-braggamalinu-til-heradssaksoknara-til-rannsoknar-a-grundvelli-almennra-hegningarlaga/