Skipstjóri frystitogara sem staddur var 40 sjómílur austur af Norðfjarðarhorni hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð vegna slasaðs skipverja um borð.
Eftir samráð við þyrlulækni var ákveðið að kalla út áhöfnina á TF-EIR til að sækja manninn. Um átta leytið í morgun var TF-EIR komin að skipinu og hífði manninn um borð.
Ákveðið var að fljúga með hann til Egilsstaða. Þar beið sjúkraflugvél Mýflugs sem kom honum undir læknishendur í Reykjavík.
Umræða