Niðurstöður úr Covid-19 skimun allra sjúklinga og meirihluta starfsfólks hjartadeildar Landspítala liggja núna fyrir og eru allar neikvæðar. Ljóst er að ekki er um útbreitt smit á deildinni að ræða. Af því tilefni hefur farsóttanefnd spítalans ákveðið að aflétta sóttkví af deildinni og starfsfólki hennar. Hjartadeild tekur nú við innlögnum á nýjan leik og starfsemin þar verður með eðlilegum hætti frá og með kl. 13:00, miðvikudaginn 13. janúar.
Jákvæð niðurstaða um smit kom upp á hjartadeild í gær, þriðjudaginn 12. janúar, við hefðbundna öryggisskimun sjúklings fyrir útskrift. Þetta var alvarlegur atburður í starfsemi Landspítala og viðbragðið í kjölfarið umfangsmikið, útbreitt og viðeigandi. Skjótt viðbragð Landspítala og viðamiklar öryggisráðstafanir til að vernda sjúklinga og starfsfólk hafa nú leitt af sér þessa niðurstöðu. Málið var leitt til lykta á innan við sólarhring af vel þjálfuðu starfsfólki og vísindamönnum Landspítala. Um 200 skimanir af starfsfólki hafa verið framkvæmdar, flestar niðurstöður liggja fyrir, en niðurstöður úr öllum berast síðar í dag. Sjúklingar deildarinnar voru allir skimaðir í gærkvöldi.
Umræddur sjúklingur hafði tvisvar sýnt neikvæða svörun áður en þessi jákvæða svörun barst. Slíkt getur gerst vegna ýmissa ástæðna; til dæmis breytinga á sýnatöku og þróun sjúkdómsins í viðkomandi. Skimun er hins vegar framkvæmd óháð grun í öryggisskyni með stroki og er hraðunnin; svar berst jafnan innan 3-4 klukkustunda. Sjúklingar eru skimaðir með reglubundnum hætti. Viðkomandi reyndist síðan hár í mótefnamælingu við blóðprufu, sem mælir með nákvæmri rannsókn grun um eldra smit vegna jákvæðrar niðurstöðu af skimun. Að öllum líkindum er því um eldra smit að ræða í viðkomandi sjúklingi, sem hann hefur fengið áður en hann lagðist inn á Landspítala í desember. Verið er að skoða málið nánar.
Landspítali þakkar sjúklingum, aðstandendum, starfsfólki og fjölmiðlum fyrir samstarf, góðan skilning og þolinmæði undanfarinn sólarhring. Sérstakar þakkir fá sjúklingar og starfsfólk hjartadeildar, Covid-19-göngudeildin sem annaðist skimanir og sýkla- og veirufræðideild, sem vann allar rannsóknir hratt og vel.