Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag er útlit fyrir fremur milda og vætusama suðaustanátt, allvíða hvöss. Seinnipartinn fer að lægja og dregur jafnframnt talsvert úr úrkomu, fyrst um landið vestanvert. Víðast hvar frostlaust á láglendi en hæst gæti hiti farið í 7 til 8 stig. Suðlægari á morgun, heldur hægari en í dag. Áfram væta á köflum sunnan- og vestantil og hiti 1 til 6 stig, en þurrt og bjart veður fyrir norðan og austan og hiti um og undir frostmarki.
Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 13-20 m/s og víða rigning eða slydda S- og V-lands og hiti 1 til 6 stig þar, en annars hægari, þurrt að kalla og minnkandi frost NA-til. Mun hægari og skúrir seinnipartinn, fyrst SV-lands. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.
Sunnan 8-15 á morgun, hvassast V-til. Skúrir eða slydduél, en yfirleitt þurrt um landið N- og A-vert. Hiti 1 til 6 stig, en um og undir frostmarki NA- og A-til.
Spá gerð: 13.01.2021 04:02. Gildir til: 14.01.2021 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðlæg átt, 8-15 m/s, rigning eða slydda með köflum og hiti 1 til 5 stig, en hægari, bjartviðri og hiti um og undir frostmarki NA- og A-lands.
Á föstudag:
Austlæg átt, 3-8 m/s, en 10-15 syðst. Rigning eða slydda á stöku stað um landið sunnanvert, en annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 4 stig sunnantil, en annars vægt frost.
Á laugardag og sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt, stöku él einkum N- og A-til. Frost um mest allt land.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir norðanátt með éljum, en bjartviðri sunnan heiða og herðir frost.
Spá gerð: 12.01.2021 20:10. Gildir til: 19.01.2021 12:00.