Vesalings elskendur – Frumsýnd á morgun – Valentínusardaginn 14. febrúar!
Gala forsýning myndarinnar var í gær og Fréttatíminn var á staðnum og óhætt er að segja að myndin fékk frábærar móttökur gesta sem að skemmtu sér vel
Bræðurnir Óskar og Maggi eru báðir rólegir í tíðinni, en eiga erfitt með náin sambönd, en þeir fást við þetta vandamál hvor á sinn hátt.
Óskar reynir að forðast tilfinningaleg tengsl, en Maggi fer í hvert sambandið á fætur öðru. Fjarlægur faðir þeirra á í svipuðum vandamálum, en hefur á einhvern ótrúlegan hátt náð að hanga í sambandi með Guðrúnu en hann hitti hana eftir að fyrri eiginkona hans, barnsmóðir hans, lést þegar drengirnir voru litlir. Dýralæknirinn Anna stendur frammi fyrir mikilvægri ákvörðun, og verður fyrir áhrifum af Óskari. Unga listaspíran Ingibjörg reynir að vaxa úr grasi eins hratt og hún getur og vinirnir 13 ára þeir Danni T og Danni M, halda áfram að lifa sínu venjulega lífi, og dvelja sífellt meira heima hjá Óskari.
Myndin er framleidd af Önnu G. Magnúsdóttur og Anders Granström hjá Little Big Productions í Svíþjóð en Guðrún Edda Þórhannesdóttir og Friðrik Þór Friðriksson hjá Hughrif eru meðframleiðendur. Þau voru einnig meðframleiðendur fyrstu myndar Hult, Hemma.
Maximilian Hult, leikstjóri og handritshöfundur, er sænskur og hefur m.a. leikstýrt myndinni Hemma, sem einnig var tekin hér á landi og frumsýnd 2013.
„Maximilian Hult leggur dálítið aðrar áherslur en gjarnan má sjá í íslenskum kvikmyndum. Hann vinnur með fínlegri húmor en okkar íslenska, sem er oft groddalegur. Kómidían í hversdagsleikanum er allt í kringum okkur og Maximilian er sérstaklega flinkur að draga litlu hlutina í umhverfi okkar fram, öll þessi kómísku vandræði okkar við að lifa. Myndin verður þess vegna hlý og skemmtileg en vandræðaleg á saman tíma,“ segir Björn Thors aðalleikari í samtali við Vísi.
Leikstjóri og handritshöfundur: Maximilian Hult Framleiðendur: Anna G Magnúsdóttir & Anders Granström
Meðframleiðendur: Guðrún Edda Þórhannesdóttir & Friðrik Þór Friðriksson, Spellbound Productions Iceland
Leikarar: Björn Thors, Jóel Sæmundsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Hafdís Helga Helgadóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Sigurður Karlsson, Þóra Karítas Árnadóttir
Um myndina – Panta miða