Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi:
Veðurstofa Íslands lýsir yfir óvissustigi vegna ofanflóðahættu sem tekur gildi á Austurlandi kl. 20 í kvöld vegna mikillar rigningarspár næsta einn og hálfa sólarhringinn. Spáð er vaxandi úrkomu í SA-átt sem byrjar í kvöld sem rigning á láglendi en slydda eða snjókoma í fjöllum. Það hlýnar á morgun og gæti rignt upp í fjallatoppa í SA 13-18 m/s. Spáð er uppsafnaðri úrkomu á bilinu 100-200 mm.
Talsverður snjór er sums staðar í fjöllum og við þessar aðstæður gætu vot snjóflóð fallið og jafnvel krapaflóð eða skriður þegar líður á veðrið. Fylgst verður með aðstæðum og metið á morgun, sunnudag, hvort grípa þurfi til ráðstafana m.a. á Seyðisfirði þar sem skriður féllu í desember. Samkvæmt veðurspá dregur hratt úr úrkomunni aðfaranótt mánudags.
Sérfræðingar á ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands fylgjast með aðstæðum á staðnum sem og með sjálfvirkum mælitækjum.
https://www.logreglan.is/austurland-vedurstofa-island-lysir-yfir-ovissustigi-vegna-ofanflodahaettu/
[https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2021/02/Screenshot-2021-02-13-at-17.28.03.png]<https://www.logreglan.is/austurland-vedurstofa-island-lysir-yfir-ovissustigi-vegna-ofanflodahaettu/>
Austurland: Veðurstofa Íslands lýsir yfir óvissustigi vegna ofanflóðahættu | Lögreglan<https://www.logreglan.is/austurland-vedurstofa-island-lysir-yfir-ovissustigi-vegna-ofanflodahaettu/>
//English translation expected// //Wkrótce tłumaczenie na język polski// Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi: Veðurstofa Íslands lýsir yfir óviss…