• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. mars 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0
Dómsmálaráðuneytið, ríkislögreglustjóri og lögreglustjórar landsins, ásamt ríkissaksóknara og héraðssaksóknara hafa unnið saman að áætlun um stóreflingu í almennri löggæslu, bættan málshraða kynferðisbrota, aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og eflingu lögreglunáms hér á landi.

Undanfarin ár hefur þróun löggæslumála ekki verið í takt við almenna þróun í íslensku samfélagi. Landsmönnum hefur fjölgað og ferðamenn eru margfalt fleiri en áður. Þessu hafa fylgt fjölbreytt verkefni lögreglu og aukið álag um allt land. Það liggur fyrir að fjöldi lögreglumanna hefur ekki haldið í við þessa þróun. Hlutfall ófaglærðra lögreglumanna hefur farið vaxandi, einkum á landsbyggðinni og viðbragðstími lögreglu víða á landsbyggð er ekki ásættanlegur. Á sama tíma verður vart við aukinn vopnaburð og alvarlegri afbrot en áður og lögreglumenn lenda oftar í hættulegum aðstæðum. Skipulögð brotastarfsemi er að aukast hér á landi og slík starfsemi virðir hvorki umdæmamörk né landamæri. Undanfarin ár hafa ítrekað borist varnaðarorð frá lögregluyfirvöldum vegna þessarar þróunar.

Til þess að bregðast við þeirri stöðu kynnir dómsmálaráðherra fjórþætt aðgerðaplan í löggæslumálum.

  • Umfangsmikla eflingu almennrar löggæslu
  • Efling menntunar lögreglumanna
  • Nýja aðgerðaráætlun gegn kynferðisbrotum
  • Stóreflingu aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Undirbúningur að þessu hefur staðið í meira en 12 mánuði. Á síðasta ári lauk störfum starfshóps um verkefni lögreglu undir forystu Vilhjálms Árnasonar, þingmanns og skilaði starfshópurinn greinargerð og tillögum sem hafa nýst vel við þessa vinnu. Þá hefur ráðuneytið ásamt ríkislögreglustjóra á undanförnum vikum átt fundi með öllum lögreglustjórum til þess að ræða stöðu löggæslu í hverju umdæmi fyrir sig. Með þessum undirbúningi og auknum skilningi á stöðunni hefur tekist að skapa grundvöll fyrir skilvirkar aðgerðir sem munu skila árangri.

Aðgerðirnar felast í því að bætt verður við  samtals um 80 stöðugildum til að mæta veikleikum og efla löggæslu um allt land.

Þessi stöðugildi skiptast þannig:

  • Um 30 lögreglumenn um allt land
  • Um 10 sérfræðingar í margvísleg lögreglustörf, þar á meðal almannavarnir og samfélagslöggæslu
  • Um 10 landamæraverðir
  • Um 20 stöðugildi til að takast á við skipulagða brotastarfsemi
  • Um 10 stöðugildi við rannsókn og saksókn kynferðisbrota, en þessum stöðugildum var bætt við fyrir áramót.

Þetta mun leiða til þess að á höfuðborgarsvæðinu verður stigið stórt skref þegar lögreglumönnum á vakt verður fjölgað til muna. Viðbragðsgeta á landsbyggðinni verður styrkt verulega og samhliða þessu er lögreglan að efla sinn búnað og má þar nefna aukinn varnarbúnað lögreglumanna. Gert er ráð fyrir að einstök verkefni verði færð á landsbyggðina til þess að styrkja embættin þar.

Strax á síðasta ári var hafist handa við að efla lögreglunámið því þessar breytingar munu kalla á fleiri menntaða lögreglumenn. Það þýðir að á næstu árum munu árlega útskrifast tvöfalt fleiri lögreglumenn en hingað til.

Dómsmálaráðherra hefur samþykkt nýja aðgerðaráætlun gegn kynferðisbrotum sem mun gilda næstu þrjú árin. Á síðasta ári var um 10 stöðugildum bætt við í rannsóknir og saksókn kynferðisbrota og hefur tekist að vinna töluvert niður uppsafnaðan málafjölda hjá lögreglunni með fjölgun starfsfólks og breyttum vinnubrögðum.

Fjölgað verður um allt að 20 manns til þess að styrkja rannsóknar- og greiningargetu lögreglunnar varðandi skipulagða brotastarfsemi. Þetta mun margfalda getu lögreglunnar til að takast á við nýjar áskoranir. Mynduð verða rannsóknarteymi sem starfa þvert á embætti og mun héraðssaksóknari taka við formennsku í stýrihópi fyrir rannsóknarteymin. Stýrihópurinn verður sá hópur sem greinir og forgangsraðar verkefnum í skipulagðri brotastarfsemi. Þátttaka í evrópsku löggæslusamstarfi verður aukin, meðal annars með nýjum íslenskum fulltrúa hjá EuroJust og áframhaldandi fulltrúa hjá EuroPol.

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, „Þetta er upphafið að þörfu grettistaki í löggæslumálum á Íslandi. En til að sporna við þessari óheillavænlegu samfélagsþróun þarf samspil fleiri þátta. Við þurfum samstillt átak samfélagsins alls, fjölskyldunnar, skólakerfisins og annarra stofnana samfélagsins. Og að því þarf að vinna með viðeigandi stofnunum. Framundan eru krefjandi verkefni og ég treysti ríkislögreglustjóra, héraðssaksóknara, – okkar öflugu lögreglustjórum og lögreglumönnum – til að takast á við þetta sem ein heild.“

Þessar aðgerðir voru kynntar á upplýsingafundi dómsmálaráðherra í dag að viðstöddum ríkislögreglustjóra, Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, Höllu Bergþóru Björnsdóttur og héraðssaksóknara, Ólafi Þór Haukssyni.

Upptaka af fundinum er aðgengileg á vef dómsmálaráðuneytisins. 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?