Brot 206 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 9. mars til mánudagsins 13. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fjórum sólarhringum fóru 19.834 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118. Sjö ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 12 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, á móts við Hellubraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 436 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.
Brot 74 ökumanna voru mynduð í Urriðaholtsstræti í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í austurátt, að Dyngjugötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökamanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.