Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir Stefáni Ingimar Koeppen Brynjarssyni, 48 ára karlmanni. Þetta er gert að beiðni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hann er eftirlýstur vegna rannsóknar á innflutningi og dreifingu fíkniefna.
Þau sem geta veitt upplýsingar um hann, ferðir hans eða dvalarstað eru beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.
Umræða