Fisher-Price innkallar barnastól af markaði eftir fleiri en 30 dauðsföll. Bandaríska neytendastofan (CPSC) og framleiðandi barnstóls Fisher-Price innkalla stólinn vegna þess að 32 börn hafa látist vegna notkunnar á stólnum.
Ungbörn hafa látist við notkun á stólnum, það hefur gerst þegar barnið hefur runnið af bakinu á magann þar sem þau voru ekki fest við stólinn, segir yfirlýsing CPSC. Fisher-Price hættir því með 4,7 milljónir stóla af Rock ‘n Play gerðinni, sem kom á markað árið 2009. Samkvæmt New York Times hafa börnin kafnað eftir að þeir sneru sér í stólnum, skorðuð föst, með öndunarfærin að efninu sem er í stólunum.
Fisher-Price segir að verksmiðjan hafi minnkað stólana í samvinnu við bandarísk neytendayfirvöld. Félagið og neytendayfirvöld gáfu fyrst út sameiginlega viðvörun um notkun Rock ‘n Play Sleeper. Viðvörunin kom eftir fyrstu skýrslu um að svefnstóllinn gæti verið tengdur 10 dauðsföllum frá 2015 til 2018. Þetta þýddi að búnaður væri ófullnægjandi og hvatti félagið til að stólinn yrði innkallaður af markaði, til að koma í veg fyrir að það væru seldir og notaðir á meðan að á rannsókn á dauðsföllum barna væri í gangi.
Þegar CPSC neytendanefndin upplýsti nú í vikunni að dauðsföll geti orðið fleiri við notkun á stólunum, en upphaflega var talið, leiddi það til alsherjar innköllunar á stólunum. Bandaríska neytendastofan (CPSC) hefur auglýst í öllum fylkjum Bandaríkjanna og hvatt fólk til þess að skila stólunum strax.
Þá hefur forstjóri fyrirtækisins gefið út yfirlýsingu: