• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Austlæg átt með vætu sunnan- og vestantil á landinu og hlýnar fyrir norðan

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. maí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Framan af degi má búast við ákveðinni austlægari átt með vætu sunnan- og vestantil á landinu en síðdegis lægir, suðlægari og styttir alveg upp í kvöld. Síðan taka við mildar og á köflum hlýjar suðlægar áttir, meira og minna út vikuna.
Hins vegar er það svo að þegar svo hlýtt loft kemur yfir landið úr suðri eða suðaustri þá fylgir nær undantekningalaust hár loftraki sem þéttist síðan í rigningu eða súld. Í þetta sinn er úrkoman fremur lítil en lengst af verður skýjað. Hlémegin fjalla, eins og í þessu tilfelli er norðanvert landið verður hins vegar þurrt og mun bjartara og eins og svo oft áður hlýnar meira þar. Hitatölur 12 til 18 stig þar verða algengar að deginum næstu daga en yfirleitt eitthvað svalara syðra.

Veðurhorfur á landinu

Suðaustan 8-15 og rigning með morgninum, einkum S- og V-lands. Sunnan 5-13 og úrkomulítið seinnipartinn. Hiti 7 til 14 stig í dag, hlýjast á N-landi.
Bætir heldur í vind og úrkoma S- og V-til á morgun og hiti 8 til 18 stig, svalast við SA- og A-ströndina.
Yfir Grænlandi er 1035 mb hæð, en um 350 km A af Jan Mayen er 1018 mb lægð sem fer A og grynnist. Á Norðursjó er 1041 mb hæð, en um 550 km VSV af Reykjanesi er 992 mb lægð sem fer hægt VNV. Langt SV í hafi er víðáttumikil 979 mb lægð sem þokast N.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Sunnan og suðaustan 8-13 m/s, skýjað og rigning öðru hverju S- og V-lands. Hægari vindur og bjart með köflum á N- og A-landi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðan heiða.
Á fimmtudag:
Sunnan 3-8 og víða léttskýjað N- og A-lands, en skúrir á S- og V-landi. Hiti breytist lítið.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Austlæg átt og víða léttskýjað á NA-verðu landinu, annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 18 stig, svalast á annesjum N- og A-lands.
Spá gerð: 13.05.2019 08:37. Gildir til: 20.05.2019 12:00.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    126 deilingar
    Share 50 Tweet 32
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?