• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bíladagar hefjast á miðvikudaginn

Fólkið sem sat undirbúningsfundinn um Bíladaga 2023. Mynd: Almar Alfreðsson

Bíladagar hefjast á miðvikudaginn

Vart hefur orðið við glannaakstur á Bíladögum fyrri ára en slíkur akstur er ólöglegur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. júní 2023
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Aflinu, Bílaklúbbi Akureyrar, lögreglu, slökkviliði og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili funduðu nýverið um Bíladaga 2023 sem hefjast miðvikudaginn 14. júní og lýkur formlega laugardaginn 17. júní með bílasýningu og spólkeppni (burnout).

Vart hefur orðið við glannaakstur á Bíladögum fyrri ára en slíkur akstur er ólöglegur og samræmist engan veginn siðareglum Bíladaga sem höfuðáhersla verður lögð á sem fyrr að allir virði. Hart verður tekið á þeim brotum sem kunna að koma upp og gildir þá einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn umhverfismiðstöðvar hafa nú þegar komið upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og háskalegan hraðakstur sem er að sjálfsögðu bannaður.

Þjónusta verður ólík eftir tjaldsvæðum þessa daga. Fjölskyldutjaldsvæðið við Hrafnagil verður lokað fyrir 30 ára og yngri frá þriðjudeginum 13. júní til laugardagsins 17. júní. Þá verður hliðvarsla og ströng gæsla til að stjórna aðgengi að svæðinu. Tjaldsvæði Bílaklúbbsins verður opnað þriðjudaginn 13. júní kl. 19 og er opið til sunnudagsins 18. júní. Svæðið er opið öllum gestum Bíladaga en ekki aðeins þeim sem keypt hafa passa á alla viðburði Bíladaga sem er breyting frá fyrra fyrirkomulagi. Engin breyting er á þjónustu fjölskyldutjaldsvæðisins á Hömrum sem er opið alla daga.

Ásgeir Hreiðarsson, framkvæmdarstjóri tjaldsvæðisins að Hömrum, segir að það sé fyrst og fremst ætlað fjölskyldum og gerðar ríkar kröfur til tjaldgesta um að næði sé virt á svæðinu svo bæði börn og fullorðnir geti notið dvalarinnar.

„Eins og alla aðra daga er 18 ára aldurstakmark inn á svæðið og yngri einstaklingum sem ekki verða í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum verður vísað frá. Það dugar ekki að vera í fylgd með einhverjum sem er eldri en átján ára. Þessa helgi verður rekið annað tjaldsvæði í bænum þar sem þeir sem ekki falla undir fjölskylduhópinn sem dvelur á Hömrum geta sett niður tjöld sín. Það er hið besta mál og þar gilda heldur rýmri vökureglur en hjá okkur og það er sérstaklega rekið af Bíladögum og ætlað þeirra gestum,“ segir Ásgeir Hreiðarsson.

Dagskrá Bíladaga er eftirfarandi:*

14. júní – Auto X kl. 16
14. júní – Drift sýning kl. 18
15. júní – Rallycross kl. 13
15. júní – Hávaðakeppni, græjukeppni og bílalimbó frá kl. 20
16. júní – Götuspyrna kl. 15
17. júní – Bílasýning kl. 10-18
17. júní – Burnout kl. 20-23

*Birt með fyrirvara um breytingar

Nánari upplýsingar um Bíladaga er að finna HÉR

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra.
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mesta lækkun fasteignaverðs í 11 ár

    Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    785 deilingar
    Share 314 Tweet 196
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    287 deilingar
    Share 115 Tweet 72
  • Togarar á strandveiðum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    437 deilingar
    Share 175 Tweet 109
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?