Heilt yfir gekk nóttin vel fyrir sig á höfuðborgarsvæðinu að sögn lögreglu og gleðin víðast við völd líkt og undangenginn dag. Tveir aðilar voru þó handteknir fyrir líkamsárás í morgunsárið og vistaðir í fangageymslu.
Vitni að líkamsárásinni var einnig handtekið, en viðkomandi neitaði að gefa lögreglu upp persónuupplýsingar. Lét viðkomandi sér ekki segjast fyrr en búið var að færa hann á lögreglustöð þar sem varðstjóri veitti honum föðurlegt tiltal, enda ber mönnum undanbragðalaust að gefa upp persónuupplýsingar ef lögregla krefst þess. Var viðkomandi frjáls ferða sinna eftir að því loknu.
Aðili var handtekinn fyrir eignaspjöll í Reykjavík snemma í morgun. Var sá í mjög annarlegu ástandi, fór ekki að fyrirmælum lögreglu og gat auk þess ekki gert grein fyrir þvi hver hann er. Var hann því vistaður uns unnt verður að greiða úr hans málum eftir örlitla hvíld.
Í gær voru þrír menn handteknir, grunaðir um að breiða út hatursboðskap. Virtist þeim sérstaklega vera uppsigað við hinsegin fólk og litað fólk, en gleði gærdagsins virðist hafa farið öfugt ofan í þá. Eru þessir aðilar meðal annars grunaðir um eignaspjöll á hinsegin fánum í liðinni viku. Var einum þeirra sleppt úr haldi fljótlega en tveir voru vistaðir vegna rannsóknar málsins og standa yfirheyrslur yfir þeim nú yfir.