Neyðarboð um að skipið væri að sökkva ásamt áhöfn
Í heilar þrjár klukkustundir sigldi áhöfn björgunarskipsins Kristian Gerhard Jebsen og fjöldi annarra skipa á fullri ferð í aftaka veðri í björgunarleiðangur vegna neyðarboða sem komu frá skipi sem sagt var að væri að sökkva ásamt áhöfn þess. Þrjár þyrlur voru einnig sendar á vettvang.
Neyðarkallið barst til lögregluyfirvalda á suðvestur- svæði Noregs rétt eftir klukkan 22 á föstudagskvöld og var það metið sem mjög alvarlegt og fór á hæsta viðbúnaðarstig.
Samkvæmt símtalinu til lögreglunnar var skip ásamt áhöfn þess að sökkva út af Røvær í Noregi sem er lítil eyja við Haugasund. Símtalið sem lögreglan átti við tilkynnandann rofnaði eftir stuttan tíma og í kjölfarið var send út allsherjar viðvörun og var málið flokkað í hæsta alvarleikastig og meðal annars send boð til aðal björgunarmiðstöðvar á viðkomandi svæði þess efnis.
– ,,Það komu til okkar skilaboð um að skip væri að sökkva ásamt áhöfn þess og við brugðumst snarlega við þessu alvarlega neyðarboði og kölluðum út allt tiltækt björgunarlið, bæði björgunarskip, nærstödd skip og þyrlur.“ Segir Jan Lillebø, formaður björgunarsveitarinnar.
Neyðarboðin voru fölsk
Brit Randulff hjá lögreglunni í Stavanger segir að 17 ára unglingur hafi játað að hafa hringt og sent út neyðarboðið. „Honum líkaði ekki vel við að vera á sjónum,“ sagði hún við fjölmiðla. Í gær ákvað lögreglan að fylgja eftir kæru á hendur drengnum, vegna þessa alvarlega atviks. Alvarlegt er þegar falskt neyðarkall er sent út og um er að að ræða refsiverðan veknað. Í þessu tilfelli á drengurinn hættu á að lenda í fangelsi, jafnvel þó að hann sé yngri en 18 ára.
– ,,Við verðum bara að fara í leit og björgun og gera allt eins og venjulega, óháð því hvort við teljum að um sé að ræða raunveruleg neyðarboð eða ekki,“ segir yfirmaður neyðarlínunnar, Benjamin Fraenkl. Það gerðum við og sendum út björgunarsveitarmenn á skipi og þrjár þyrlur. Að auki var fjöldi skipa á svæðinu einnig kölluð til aðstoðar. Gott ljós var frá björtu tunglskini næturinnar sem hjálpaði til við leitina að skipinu en talsverður sjór var og aftakaveður en leitaraðstæður voru samt ágætar. Klukkan 02:00 um nóttina var aðgerðinni snögglega aflýst og þyrlurnar voru sendar heim og bátarnir látnir snúa við. Neyðarboðið var falskt.“
,,Þetta var heimskulegt, mjög heimskulegt, ég get ekki sagt annað um þetta fáránlega atvik og við óttuðumst að fólk væri í alvöru lífshættu,“ Segir Lillebø, formaður björgunaraðila. Ef einhver annar hefði t.d. lent í erfiðum aðstæðum á meðan við vorum með allan okkar mannskap við að sinna fölsku neyðarboði, gæti það hafa leitt til þess að einhver sem var í raunverulegum lífsháksa hefði tapað lífinu,“ segir Lillebø.