Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Covid-19 smit hefur komið upp innan almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn reyndist jákvæður fyrir veirunni og hefur verið í einangrun síðustu daga. Hann hefur einkenni veirunnar og heilsast vel miðað við aðstæður. Þrír aðrir samstarfsmenn fóru í sóttkví eftir að smitið uppgötvaðist.
Almannavarnadeild fer ítarlega eftir reglum og leiðbeiningum um sóttvarnir og samkomutakmarkanir og hafa veikindi Rögnvalds og sóttkví þriggja starfsmanna ekki haft áhrif á starfsemi almannavarnadeildar.
Umræða