Slagsmál brutust út á milli manna í Garðabæ sem endaði með því að tveir menn hlutu stungusár.
Tveir menn voru handteknir vegna málsins og vistaðir í fangaklefa og er málið í rannsókn. Þolendurnir voru fluttir á bráðamóttöku með sjúkrabíl en þeir eru ekki lífshættulega slasaðir.
Skallaði lögreglumann í andlitið – hótaði lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra lífláti
Þá var maður í annarlegu ástandi handtekinn í Kópavogi (hverfi 203) vegna eignaspjalla. Þegar lögregla var að flytja manninn í fangaklefa réðst hann á lögreglumann og skallaði hann í andlitið ásamt því að hóta lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra lífláti. Maðurinn vistaður í fangaklefa.
Rotaði mann og kýldi lögreglumann
Maður var handtekinn í hverfi 112 eftir að hafa ráðist á mann og rotað hann, þegar lögregla var að ræða við manninn réðst hann á lögreglumann og kýldi hann í anlitið. Maðurinn vistaður í fangaklefa.
Rán
Maður var handtekinn í hverfi 103 vegna þjófnaðar, hann var í mjög annarlegu ástandi svo ekki var hægt að taka skýrslu af honum og var vistaður í fangaklefa. Rán var framið úr verslun í hverfi 105, maðurinn hafði á brott með sér peninga og hljóp út úr versluninni, málið er í rannsókn