Samtök atvinnulífsins birtu neðangreinda tilkynningu, aðfaranótt mánudags, til að benda fyrirtækjum á rétt þeirra í náttúruhamförum
Ef vinna fellur niður hjá atvinnurekanda vegna ófyrirséðra áfalla, s.s. náttúruhamfara, þá verður honum ekki gert að greiða laun til starfsfólks síns, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 19/1979 . Rétt er að tilkynna starfsfólki, t.d. með tölvupósti, ef atvinnurekandi hyggst ekki greiða laun við þessar aðstæður.
Ákvörðun atvinnurekanda um að greiða ekki laun felur ekki í sér uppsögn ráðningar eða slit ráðningarsambands. Þegar aðstæðum linnir og starfsemi getur hafist á ný þá ber starfsfólki að koma aftur til vinnu og skylda til greiðslu launa verður virk á ný.
Ef atvinnurekandi vill bíða um sinn og meta aðstæður, þá tapar hann ekki rétti til að byggja síðar á 3. gr. laga nr. 19/1979. Það er rétt að upplýsa starfsfólk að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða sem verði endurmetin þegar aðstæður skýrast.
Starfsfólk getur sótt um atvinnuleysisbætur, felli atvinnurekandi það af launaskrá. Bjóðist starfsmanni annað starf þá er hann óbundinn af uppsagnarfresti hjá atvinnurekanda og getur því látið fyrirvaralaust af störfum. Honum ber að tilkynna atvinnurekanda án tafar ef hann ræður sig í annað starf til frambúðar.
Réttindi og skyldur atvinnurekenda þegar náttúruhamfarir stöðva rekstur
Þegar náttúruhamfarir stöðva starfsemi fyrirtækis, s.s. jarðskjálftar, eldgos, snjóflóð eða skriðuföll, þá verður því ekki gert að efna samningsskuldbindingar sínar gagnvart starfsfólki. Byggir það á almennum reglum samningaréttar um force majeure og 3. gr. laga nr. 19/1979. Fyrirtæki í fiskvinnslu geta sótt um endurgreiðslur, haldi þau starfsfólki tímabundið á launaskrá.
Lögfræðingar vinnumarkaðssviðs SA veita aðildarfyrirtækjum ráðgjöf vegna álitamála sem upp kunna að koma. Nánari umfjöllun munu bætast við hér að neðan eftir því sem aðstæður kalla og álitamál skýrast.