Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) hefur ákveðið að bjóða ríkinu 1.500 milljónir króna í skiptum fyrir tíu þúsund tonna þorskkvóta á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2025. Mbl. fjallaði ítarlega um stórkostlega hækkun á veiðigjödlum til eiganda sjávarauðlindarinnar, þ.e. ríkið og þjóðin.
Aflaheimildir eru gefnar út einu sinni á ári af ríkinu til allra útgerða í landinu og nú hafa bæði Landssamband smábátaeigenda og Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda. Gert Íslenska ríkinu tilboð sem það getur vart hafnað. Um er að ræða margfalt hærra auðlindagjald fyrir auðlindina en greitt hefur verið af stórútgerðinni, síðustu áratugi, til þjóðarinnar.
,,Á aðalfundar SFÚ benda samtökin, sem berjast fyrir hagsmunum fiskvinnslna sem ekki reka útgerð, á að í áliti Samkeppniseftirlitsins árið 2012 hafi sagt: „Vill Samkeppniseftirlitið árétta þau tilmæli sem beint var til þáverandi sjávarútvegsráðherra að unnt væri að auka samkeppni og nýliðun í greininni með því að auka heimildir til kvótaframsals, t.a.m. með því að aðilar sem ekki ættu fiskiskip gætu keypt, leigt og selt aflaheimildir.“
Þá er einnig bent á að ríkissjóði séu greiddar 26,66 krónur í veiðigjald fyrir hvert kíló af þorski í dag og að 10 þúsund tonn af lönduðum þorski skili því 266 milljónum.
Tilboð SFÚ er 50% hærra en tilboð félagsmanna Landssambands smábátaeigenda frá því í október.
Vilja efla strandveiðar
„SFÚ vill einnig hvetja stjórnvöld til þess að styðja við strandveiðar með öllu móti. Tilkoma strandveiða er sú breyting á fiskveiðistjórnunarkerfi okkar sem best hefur heppnast undanfarna áratugi,“ segir í ályktuninni
Fullyrða samtökin að strandveiðarnar hafi skilað aukinni atvinnu víðs vegar um landið, aukins framborðs af hráefni sem selt er á opnum markaði og aukinna atvinnutækifæra sem því tengjast og aukinna tekna vegna strandveiða. Jafnframt að strandveiðar hafi aukið tekjur hafnasjóða, sjómanna og ríkissjóðs.
„SFÚ telur að stjórnvöld ættu að stefna að 6 mánaða strandveiðiútgerð og tvöföldun á því magni sem veiðunum hefur verið veitt. Stjórnvöld ættu einnig að hlúa að kerfinu í alla staði með tilliti til atvinnuveiða án þess þó að gefa eftir í vistvæni og umhverfisnálgun,“ segir í ályktun aðalfundar SFÚ.“ Segir í frétt MBL.is
Átta mánaða leyfi til strandveiðibáta og 10.000 tonn af þorski að auki – Ufsi ofl. utan kvóta
Átta mánaða leyfi til strandveiðibáta og 10.000 tonn af þorski að auki – Ufsi ofl. utan kvóta