Fyrsti nektar- veitingastaðurinn í París er nú að loka eftir rúmlega árs starfsemi, en staðurinn hefur lagt áherslu á klassískan franskan mat. Nektarsaðurinn mun loka þann 16. febrúar, samkvæmt yfirlýsingu á Facebook frá eigendum. Þeir Mike og Stéphane Saada, eigendur staðarins, sögðu fréttastofu AFP að þeir væru að loka af fjárhagslegum ástæðum
Í öðrum Facebook pósti, benda þeir viðskiptavinum á að nýta sér þann tíma sem eftir er. ,,Ekki hika við að bóka núna til að njóta síðustu máltíðarinnar, nakinn á staðnum okkar hér í París, Það er núna eða aldrei! “
Nektarstaðurinn opnaði í nóvember 2017 og hafði marga fasta gesti og fékk veitingastaðurinn góðar umsagnir frá viðskiptavinum á Facebook og að meðaltali skoraði staðurinn 4,8 stig af 5.
Margir viðskiptavinirnir lofuðu bæði matinn og einstaka upplifun eftir að hafa notið máltíðar á staðnum án klæða. Vegfarendur gátu ekki séð inn, þar sem að þykk hvít gluggatjöld voru fyrir öllum gluggum. ,,Frábær veitingastaður og framúrstefnulegur.“ Skrifaði Florian Dupuis í ágúst síðastliðnum.
,,Að stuðla að fallegu gildi náttúrunnar, umburðarlyndis án þess að dæma og fá að koma fram eins og við erum án fata er frábært.“ Viðskiptavinir Diners í O’Naturel geyma fötin sín í fataskáp þegar að þeir koma til þess að borða á staðnum og farsímar eru bannaðir vegna persónuverndar, samkvæmt frétt AFP.
Og á meðan viðskiptavinirnir borða eru naknir, þá eru eigendurnir fullklæddir er þeir þjóna gestunum. ,,Hlutverk okkar er að veita fólki vellíðan,“ sagði Stéphane í viðtali við AFP þegar veitingastaðurinn opnaði. ,,Um leið og viðskiptavinir fara inn á veitingastaðinn, fylgum við þeim að borðinu sínu, þar sem að þeir geta verið í friði. Það virðist vera vaxandi áhuga á nudisma í Frakklandi.“
Nektarsvæði var opnað í Bois de Vincennes garðinum í ágúst 2017 og var opinn í þrjá mánuði og var svo opnaður á ný vorið 2018, með það að markmiði að laða að 2,6 milljónir nudista sem búa í Frakklandi.