Í gær fundust 29 ára og fertug kona látnar á vinsælum ferðamannastað, rétt við litla á sem rennur í Osavatvatnið. Fjallað er um morðin sem gerðust á vinsælu göngusvæði við rætur hæsta fjalls við Bergen, Gullfjellet, í dagblöðum í Noregi. Tveir menn hafa nú þegar verið ákærðir fyrir morðin.
Göngufólk uppgötvaði blóðuga ótilgreinda muni rétt við gönguleiðina upp á fjallið og kom þeim til lögreglu. Lögreglan hóf rannsókn og fundu þeir þá 29 ára konu látna og svo þá eldri sem er um ferugt. Lögreglan veit ekki enn hvort þetta var sá staður sem morðin voru framin á eða hvort líkin hafi verið flutt þangað. Glæpasérfræðingar og rannsóknarmenn unnu ötullega á staðnum fram eftir kvöldi í gær. Sérfræðingar hafa einnig framkvæmt víðtækar rannsóknir á heimilum þeirra sem ákærðir voru í gær. Ekki liggur fyrir hvort þeir hafa sama heimilisfang.
Hinir ákærðu voru tilkynntir til neyðarlínunnar í gær og voru svo yfirheyrðir á lögreglustöðinni í Bergen í dag.
Gullfjellet er mjög vinsæll ferðamannastaður og bílastæðið nálægt þar sem líkin tvö fundust rúmar 300 bíla. Helge Bjørndal á erfitt með að trúa því að einhver hafi verið drepinn þar. ,,Ég held að líkin hafi verið fluttir þangað, segir hann.“
Lögreglan vill ekki tjá sig um ástand á líkama, hinna látnu eða hvort þeir hafi fundið vopn sem tengist málinu. Að sögn Inger-Lise Høyland, lögfræðings lögreglunnar, voru vitnin í málinu mjög sannfærandi sem hefðu leitt til þess að lögregla réðist í handtökur seint í gærkvöld. Að svo stöddu mun lögreglan ekki segja neitt um hugsanlega ástæðu morðanna, né tjá sig um hugsanlegt morðvopn eða samband mannana við hinar látnu. Lögreglan segir að meintir morðingjar og fórnarlömbin hafi áður komið við sögu lögreglunnar.