• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samband Frekra Silfurskeiðunga! – ,,Með troðfullan kjaftinn af silfurskeiðum og gargar“

Samband Frekra Silfurskeiðunga! – ,,Með troðfullan kjaftinn af silfurskeiðum og gargar“

SFS - Hagsmunasamtök silfurskeiðunga og erfingja

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. janúar 2025
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Samband Frekra Silfurskeiðunga! Með troðfullan kjaftinn af silfurskeiðum gargar nú stórútgerðin með frekju og vanþakklæti á þjóðina og fer fram með offorsi yfir því að fólkið í landinu vilji byggja hér upp sanngjarnan og réttlátan sjávarútveg á Íslandi.

Vigfús Ásbjörnsson, vistvænn strandveiðisjómaður, skrifar.

Með eflingu krókaveiða í gegnum strandveiðikerfið.Krókaveiða sem eru umhverfisvænustu veiðar sem fyrirfinnast á plánetunni og einhverjar þær hagkvæmustu líka fáist þær stundaðar með mannsæmandi hætti.

Kynslóðaskiptin í stórútgerðinni hafa nefnilega átt sér stað í mörgum þessara stórútgerða og erfingjarnir með fullan kjaftinn af silfurskeiðum eru tekin við. Fólk sem kann ekki mannasiði og er að kafna í eigin frekju og vanþakklæti.

Margt af því er fólk sem hefði aldrei komist áfram á eigin verðleikum ef silfurskeiðanna hefði ekki notið við. Nú gala þessir silfurskeiðungar á þjóðina sem ætlar að snúa við þeirri gjöreyðingarstefnu sjávarbyggða sem hefur verið stunduð hér við land síðan 1984 eins og svangar hýenur. Slík er fyrirlitningin á eigin þjóð og samfélagi.

Það dugar silfurskeiðungunum ekki að erfa ca 94,7% af veiðirétti þjóðarinnar

Það dugar silfurskeiðungunum ekki að erfa ca 94,7% af veiðirétti þjóðarinnar sem upphaflega var stolið af fólkinu í landinu í gegnum siðspilta glæpmenn á alþingi. Nei þau ætla sér að ræna 5,3% hlutdeildinni líka. Það liggur alveg fyrir og einhverstaðar tel ég mig hafa lesið að þjóðin eigi að skila silfurskeiðungunum þessum 5,3% eins og þetta sé þeirra arfur líka. Manneskjan lærir það sem fyrir þeim er haft og þessir silfurskeiðungar kunna fátt annað en frekju og yfirgang og telja að jörðin eigi að snúast í kringum þá fremur en sólina.

Kerfið snýst eingöngu um að vernda auð og völd silfurskeiðunga

Íslenskt kvótakerfi snýst ekki orðið að neinu leyti um uppbyggingu fiskistofna þó svo að misvitrir fiskifræðingar hafi haft það að markmiði fyrst um sinn. Kerfið snýst eingöngu um að vernda auð og völd silfurskeiðunga í dag og stuðlar að útrýmingu fiskistofna hér við land eins og gögn benda til.

Hvar er matvælaöryggi Íslendinga þá , eigum við bara að borða kartöflur þegar kerfið hefur gengið að fiskistofnum þjóðarinnar dauðum?

Samþjöppun af auði og völdum á Íslandi og niðurrifi sjávarþorpa

Kerfið hefur ekki byggt upp nokkurn skapaðan hlut hér á landi nema örfáar frystigeymslur í eigu örfárra fjölskyldna sem eru fullar af peningum. Peningum sem hefðu átt að nýtast við uppbyggingu samfélagsins. Kvótakerfið hefur rænt þjóðinni atvinnutækifærum sínum allt í kringum þetta land og skilið eftir sjávarbyggðir landsins og velferðarkerfi rústir einar. Tækifærum sem forfeður silfurskeiðungana höfðu jú nóg af.

Þetta er orðið gott af samþjöppun af auði og völdum á Íslandi og niðurrifi sjávarþorpa og tækifærum fólksins í landinu. Það er búið að skrifa það í nýjasta stjórnarsáttmálann og viðsnúningurinn er hafinn. Þó fyrr hefði verið…….

PS: Samband Frekra Silfurskeiðunga kemur það bara ekkert við að þjóðin ætli sér að efla hérna strandveiðar og þar með efla íslenskt samfélag og ættu bara að sýna þjóðinni þá kurteisi ef þeir hafa ekkert gott að segja að halda kjafti og þegja…..

Uppblásnar afskriftir og ofurvextir lækka veiðigjöld um milljarða króna á ári 

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?