• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samningar við Kvenréttindafélag Íslands og Samtökin ´78 undirritaðir

Álfur Birkir Bjarnason, formaður Samtakanna '78, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Samningar við Kvenréttindafélag Íslands og Samtökin ´78 undirritaðir

Rúmlega 200 milljóna greiðslur samtals

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skrifaði í dag undir samninga við annars vegar Kvenréttindafélag Íslands og hins vegar Samtökin ´78.

Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Samstarfssamningur við Kvenréttindafélag Íslands sem Tatjana Latinovic, formaður félagsins, undirritaði ásamt forsætisráðherra snýr að ráðgjöf, fræðslu og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna. Samkvæmt samningnum mun Kvenréttindafélagið sinna ýmis konar verkefnum svo sem fræðslufundum, námskeiðahaldi, gerð upplýsingaefnis á íslensku og ensku og kynningu á kvennasamningi Sameinuðu þjóðanna.

Forsætisráðuneytið greiðir Kvenréttindafélaginu 12 milljónir króna á ári til að sinna umræddum verkefnum en samningurinn er til fjögurra ára.

Styrktarsamningurinn við Samtökin ´78 sem Álfur Birkir Bjarnason, formaður samtakanna, undirritaði ásamt forsætisráðherra snýr að stuðningi við rekstur og fræðslu. Samningurinn er til fjögurra ára og greiðir forsætisráðuneytið samtökunum 40 milljónir árlega á samningstímanum.

Samkvæmt samningnum skulu Samtökin ´78 m.a. sinna fræðslu um málefni hinsegin fólks sem beinist sérstaklega að fagaðilum sem sinna þjónustu við almenning.

Einnig var undirritaður samningur um sérstakan 12 milljóna króna styrk til Samtakanna ´78 sem fjárlaganefnd Alþingis samþykkti í lok árs 2023 til að styðja almennt við rekstur samtakanna og skjóta styrkari fótum undir starfsemina en um einskiptis fjárframlag er að ræða.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?