Einn sjúklingur með kórónaveirusmit hefur verið lagður á gjörgæsludeild Landspítalans. Nærri eitthundrað nemendur og starfsmenn Fjölbrautarskóla Suðurlands eru farnir í sóttkví eftir að kennari greindist með smit á fimmtudagskvöld.
Rúv greindi frá en upplýsingafundur með fjölmiðlum vegna COVID-19 klukkan 14:00 þar sem Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 við Skógarhlíð 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma D. Möller landlæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19, staðfestra smita hér á landi, aðgerða stjórnvalda o.fl.
Á fundinum verður síðan sérstaklega fjallað um eldri borgara en það er einkar mikilvægur hópur í þeim aðgerðum sem miða að því að hefta útbreiðslu á áhrif veirunnar hér á landi. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, verður á fundinum til að ræða málefni þessa hóps.
Einnig verður Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, á fundinum en hann mun ræða þau verkefni sem Ríkisútvarpið vinnur að en stofnunin sinnir mikilvægu hlutverki í því almannavarnaástandi sem nú er.
Einnig verður Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, á fundinum en hann mun ræða þau verkefni sem Ríkisútvarpið vinnur að en stofnunin sinnir mikilvægu hlutverki í því almannavarnaástandi sem nú er.
Umræða