• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gylfi Þór er orðinn leikmaður Vals

Gylfi Þór er orðinn leikmaður Vals

Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að skrifa undir hjá Val í Bestu deild karla og gerir tveggja ára samning

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. mars 2024
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Val í Bestu deild karla. Samningurinn var undirritaður í æfingaferð félagsins í Montecastillo á Spáni nú í morgun. Þetta verður í fyrsta sinn sem Gylfi Þór spilar í efstu deild á Íslandi en hann var fimmtán ára þegar hann hélt út í atvinnumennsku árið 2005.

Tilkynning frá knattspyrnudeild Vals

Knattspyrnudeild Vals er afar stolt af því að kynna Gylfa Þór Sigurðsson sem nýjan leikmann félagsins. Gylfi gerir tveggja ára samning sem staðfestur var með undirskrift í æfingaferð félagsins í Montecastillo á Spáni nú í morgun.

Leikstíll sem hentar mér

„Ég er afskaplega ánægður með þá ákvörðun mína að ganga til liðs við Val sem er að mínu mati fyrirmyndar félag. Ég tel að leikstíll minn henti vel þeim fótbolta sem Valsliðið vill spila eftir að hafa æft með þeim að undanförnu. Mér hefur liðið vel frá því ég mætti á mína fyrstu æfingu og hér verður gott að vera,“ segir Gylfi Þór í tilkynningu sem Valur sendi frá sér í dag.

Gylfi segir ákveðin atriði hafa vegið þyngra en önnur í þeirri ákvörðun sinni að ganga til liðs við Val. „Þegar ég var búinn að ákveða að koma heim fannst mér mikilvægt að velja rétt. Umhverfið sem er boðið upp á hjá Val er mjög gott og á pari við það sem best gerist á norðurlöndunum. Svo hef ég bara góða tilfinningu fyrir klúbbnum og maður finnur að hér er mikill metnaður.“

Mættur til að vinna titil

Gylfi hefur aldrei leikið með meistaraflokki hér á landi en hann fór 15 ára gamall til Reading á Englandi. Þremur árum síðar lék hann sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins og sló eftirminnilega í gegn.

Gylfi spilaði síðan með Hoffenheim í Þýskalandi áður en hann gekk til liðs við Swansea. Með þeim lék hann í ensku úrvalsdeildinni en hann lék einnig fyrir Tottenham Hotspurs og Everton á Englandi.

Þá hefur Gylfi verið lykilmaður í sögulegum árangri íslenska liðsins og leikið bæði á lokakeppni Evrópu- og heimsmeistaramótsins.

Þrátt fyrir þennan magnaða feril segist Gylfi alls ekki vera kominn heim til Íslands til þess að hafa það eitthvað kósý.

„Alls ekki. Ég hef aldrei orðið íslandsmeistari og miðað við mannskapinn hjá Val þá tel ég ekkert því til fyrirstöðu að við berjumst um titilinn. Ég þekki nokkra mjög vel í liðinu og er að kynnast öðrum betur. Þetta er flott blanda af reynslumiklum mönnum og ungum og efnilegum strákum sem ég hlakka til þess að spila með.,“ segir Gylfi Þór.

Knattspyrnudeild Vals býður Gylfa Þór Sigurðsson hjartanlega velkominn til Vals og hlakkar til þess að fylgjast með honum á vellinum í sumar.

Gylfi Þór Sigurðsson með Arnari Grétarssyni þjálfara Vals.

Valur

Arnar Grétarsson þjálfari Vals

„Þetta eru auðvitað frábærar fréttir fyrir okkur og undirstrikar þann metnað sem stjórn Knattspyrnudeildar Vals hefur. Miðað við standið á Gylfa núna og það sem hann hefur verið að sýna okkur á æfingum þá verður ekki leiðinlegt að mæta á leiki hjá okkur í sumar. Hópurinn er orðinn mjög þéttur og góður og við höfum æft vel. Getum ekki beðið eftir því að byrja þetta.“

Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals.

„Það er mikilvægt að hafa í huga að Gylfi Þór er að velja Val vegna þess að hann hefur trú á liðinu og þeim metnaði og umgjörð sem einkennir okkur. Þetta eru ekki hlutir sem verða til á einni nóttu. Við höfum síðustu ár lagt töluvert á okkur til þess að búa til þessa umgjörð og metnað vegna þess að við viljum að leikmenn eins og Gylfi velji Val. Það hvetur okkar ungu iðkendur og setur ákveðinn standard á sama tíma og það hjálpar okkar liðum að vera í fremstu röð.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    411 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?