• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bjarni Benediktsson – Meira traust með betri stafrænni þjónustu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. maí 2018
in Óflokkað
A A
0

Bjarni Benediktsson – Meira traust með betri stafrænni þjónustu

Bjarni Benediktsson tekur við formennsku í ráðherranefndinni árið 2019 samhliða því að Ísland tekur við forystu í Norrænu ráðherranefndinni

Bjarni Benediktsson undirritar viljayfirlýsingu um samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja á sviði gervigreindar
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra situr nú fund ráðherranefndar um stafræna væðingu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, sem haldinn er í Stokkhólmi. Fjármála- og efnahagsráðuneytið tók í lok árs í fyrra við öllum upplýsingamálum ríkisins og stefnumótun á því sviði og stendur nú fyrir sérstöku verkefni sem hefur það að markmiði að efla stafræna þjónustu hins opinbera við borgarana og bæta rekstur.Á fundinum í dag var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf Norðurlanda- og Eystrasaltsþjóðanna á sviði gervigreindar. Einnig voru ræddar stafrænar breytingar á stjórnsýslu Norðurlandanna, meðal annars markmið ríkjanna um að veita stafræna þjónustu yfir landamæri og styðja við frjálst flæði fólks, þjónustu, vara, vinnuafls o.fl. milli landanna.Bjarni kynnti áherslur íslenskra stjórnvalda í innleiðingu stafrænnar opinberrar þjónustu og hvernig unnið er að því að styrkja stafræna innviði með ljósleiðaravæðingu landsins alls. „Það hefur sýnt sig að traust til stofnana og ánægja viðskiptavina þeirra helst í hendur við hversu vel þær standa sig í stafrænni þjónustu og upplýsingagjöf, “ sagði Bjarni og vísaði þar til árangurs RSK á sviði upplýsingamála. Hann vakti einnig athygli á almennri notkun rafrænna skilríkja á Íslandi og hvatti til þess að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin kæmu sér upp sameiginlegri eða gagnkvæmri viðurkenningu á rafrænum undirskriftum.Ráðherranefnd um stafræna væðingu var komið á fót árið 2017 með Digital North, sameiginlegri stefnuyfirlýsingu norrænu samstarfsráðherranna í Osló í júní 2017. Nefndin er tímabundin, tók til starfa á þessu ári og er ætlað að ljúka störfum árið 2020. Bjarni Benediktsson tekur við formennsku í henni árið 2019 samhliða því að Ísland tekur við forystu í Norrænu ráðherranefndinni. Aðild að stafrænu nefndinni eiga tíu ráðherrar upplýsingamála á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?