• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Yfir 100% verðmunur á algengum heimilis- og byggingavörum í byggingaverslunum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. júní 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Yfir 100% munur var á hæsta og lægsta verði á mörgum vörum í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ í byggingaverslunum þar sem verð á algengum heimilisvörum, efni í pallasmíði, málningarvörum, verkfærum, bílavörum og byggingavörum var skoðað. Sem dæmi var 198% munur á hæsta og lægsta verði á fjöltengi, 171% verðmunur á hefðbundnum strákústi og 165% verðmunur á 3 metra HDMI snúru. Þá var 177% verðmunur á sandpappír, 46% verðmunur á alhefluðu Lerki sem er mikið notað í pallasmíði og 209% verðmunur á lægsta stk. verði af ryðfríum trjáskrúfum.

Könnunin var gerð í verslun Byko í Breiddinni, Húsasmiðjunni í Skútuvogi, Bauhaus og Múrbúðinni, Fosshálsi. Byko var með mesta úrvalið, 44 af 51 vöru sem skoðaðar voru en Múrbúðin minnsta úrvalið, 21 vöru.

165% verðmunur á HDMI snúru og 177% verðmunur á sandpappír
Mesti munur á hæsta og lægsta verði á algengum heimilisvörum var 198% munur á hæsta og lægsta verði á sexföldu fjöltengi með 1,5 m snúru, barnaöryggi og rofa. Hæsta verðið var í Bauhaus, 4.495 kr. en lægsta verðið í Byko, 1.507 kr. 165% munur var á hæsta og lægsta verði á 3 metra HDMI snúru, lægsta verðið var í Byko, 1507 kr. en hæsta verðið í Bauhaus, 3.995 kr. Þessar vörur voru einungis til í þessum tveimur verslunum. 171% munur var á hæsta og lægsta verði á hefðbundnum strákústi og 92% á smíði á hefðbundnum húslykli en upplýsingar um verð í verslununum má sjá með því að fletta í töflunni hér að neðan.

Af bílavörum var mestur munur á lítraverði af rúðuvökva, 132%. Lægsta lítraverðið var í Byko, 198 kr. en það hæsta í Bauhaus, 459 kr. Þá var 45% munur á hæsta og lægsta verði af Sonax felguhreinsi sem kostaði minnst, 1.795 kr. í Húsasmiðjunni en mest, 2.595 kr. í Bauhaus. Þá var mikill munur á hæsta og lægsta verði á sandpappírsörkum,177%. Lægsta verðið var í Bauhaus, 115 kr. en hæsta verðið í Húsasmiðjunni, 319 kr.

310% munur var á hæsta og lægsta verði af föstum 8 mm lykli. Lægsta verðið var í Múrbúðinni, 255 kr. en það hæsta í Byko, 1.045 kr. Munur á hæsta og lægsta verði á 10‘‘ skiptlykli var hins vegar 69%. Lægsta verðið var að finna í Bauhaus, 2.245 kr. en það hæsta í Húsasmiðjunni, 3.795 kr.

Mikill verðmunur á við og skrúfum í pallasmíði
Mestur munur á efni í pall var 46% munur á hæsta og lægsta verði af alhefluðu lerki (21*95 mm). Lægsta verðið á lengdar metranum af lerkinu var hjá Bauhaus, 536 kr. en hæsta verðið í Húsasmiðjunni, 785 kr.
Þá var 209% munur á hæsta og lægsta stk. verði af ryðfríum tréskrúfum. Lægsta verðið var í Húsasmiðjunni, 11 kr. en hæsta verðið í Byko, 34 kr.

66% munur á hæsta og lægsta verði á Birkikrossviði
Verðkönnunin innihélt einnig byggingavörur sem eru sennilega ekki eins mikið keyptar en eru nauðsynlegar ef byggja þarf hús eða setja upp veggi. Af slíkum byggingavörum var mestur munur á hæsta og lægsta verði á birkikrossviði, 12 mm, 125*250 cm, 66%. Lægst var verðið í Bauhaus, 8.006 kr. en hæst var verðið í Húsasmiðjunni, 13.290 kr. Þá var 45% munur á hæsta og lægsta verði á byggingaplasti en lægsta verðið var að finna í Múrbúðinni, 9.995 kr. en hæsta verðið í Húsasmiðjunni, 14.485 kr.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.  Tafla með verðum er hér.

 

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?