• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 8. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þjóðhátíð 2020 aflýst, engir viðburðir á vegum ÍBV

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. júlí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hörður Orri Grettisson hefur fyrir hönd ÍBV og Þjóðhátíðarnefndar tilkynnt um að þjóðhátíðinni í Eyjum verði aflýst fyrir árið 2020.
,,Allar götur síðan COVID-19 breiddist út hefur Þjóðhátíðarnefnd unnið að ýmsum sviðsmyndum og haft mikið og gott samráð við Almannavarnarnefnd í þeirri vinnu. Síðasta sviðsmynd sem við vorum með var setning hátíðar, ball fyrir 2.000 manns í Herjólfsdal og ein kvöldvaka þar sem dalnum yrði skipt í þrjú 2.000 manna svæði.
Þjóðhátíð 2020 aflýst
Eftir fréttir síðustu daga hefur verið ákveðið að blása hátíðina af með einu og öllu. ÍBV mun ekki standa fyrir einum einasta viðburði um Verslunarmannahelgina, hvort um sé að ræða dansleiki, tónleika, brennu, brekkusöng eða hvað eina. Með þessu viljum við sýna fulla ábyrgð og taka af allan vafa um að ÍBV muni standa fyrir viðburði sem kynni að storka fjöldatakmörkunum.
Öll hjálp vel þegin
Þjóðhátíð er gríðarlega mikilvæg fjáröflun fyrir barna- og unglingastarf ÍBV og er ein ástæða þess að félagið getur haldið úti jafn öflugu starfi í litlu samfélagi og raun ber vitni. Á vordögum fór af stað átak hjá nokkrum Eyjamönnum sem keyptu miða og skoruðu á aðra að gera slíkt hið sama, hvort sem Þjóðhátíð yrði haldin eða ekki og styrkja þannig ÍBV ef engin yrði hátíðin. Ef fólk kýs að fá miðann sinn ekki endurgreiddan er slíkur stuðningur gríðarlega vel þeginn á þessum erfiðu tímum í rekstri barna- og unglingastarfs og ljóst að
slíkur stuðningur hvetur okkur áfram til góðra verka. Einnig verður áfram í boði að kaupa miða á Þjóðhátíð 2020 fyrir þá sem vilja styrkja félagið.
Þjóðhátíð 2021
Nú þegar er undirbúningur hafinn fyrir Þjóðhátíð 2021. Þeir sem keypt hafa miða á Þjóðhátíð 2020 mun gefast kostur á að flytja miðann á næsta ár, enda ljóst að miðaverð á Þjóðhátíð 2021 mun verða hærra en í ár.
Þjóðhátíðarlag 2020
Á föstudaginn mun Þjóðhátíðarlagið 2020 verða frumflutt í Brennslunni á FM957. Höfundar lags og texta eru bræðurnir Ingólfur og Guðmundur Þórarinssynir en Ingó hefur glætt Þjóðhátíð lífi síðustu ár eins og landsmenn þekkja. Lagið heitir Takk fyrir mig. Bræðurnir og Þjóðhátíðarnefnd voru algerlega sammála um að gefa út lagið þrátt fyrir þessi örlög.
Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja kemur út
Venju samkvæmt verður Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja gefið út þrátt fyrir að Þjóðhátíð í Herjólfsdal falli niður í ár. Blaðið sem er veglegt að sniðum hefur komið út um áratugaskeið og hverfist um hátíðina í Herjólfsdal. Útgáfudagur Þjóðhátíðarblaðsins er áætlaður föstudaginn 31. júlí og verður hægt að nálgast blaðið í Eyjum og á fastalandinu. Gefst velunnurum Þjóðhátíðar þannig færi á að styðja við ÍBV með kaupum á blaðinu.
Endurgreiðsla miða
Vinna við endurgreiðslukerfi er í fullum gangi og verður vel kynnt þegar endurgreiðslur munu hefjast, í síðasta lagi í lok þessa mánaðar. Fólk mun standa frammi fyrir þremur kostum; a) Að fá miðan endurgreiddann, b) að styrkja ÍBV um andvirði miðans, og c) að flytja miðann yfir á Þjóðhátíð 2021.
Að lokum viljum við þakka fyrir þá þolinmæði sem okkur hefur verið sýnd á þessum skrýtnu tímum. Sjáumst hress á Þjóðhátíð 2021, sem verður eflaust sú glæsilegasta sem sést hefur!“
F.h. ÍBV og Þjóðhátíðarnefndar,
Hörður Orri Grettisson

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Íslenskir hermenn sagðir á leið til Finnlands

    Íslenskir hermenn sagðir á leið til Finnlands

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    98 deilingar
    Share 39 Tweet 25
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?