• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Meirihluti fremur hlynntur þverun Vatnsfjarðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Meirihluti er hlynntur þverun Vatnsfjarðar af því fram kemur í könnun sem unnin var af fyrirtækinu ENVALYS að beiðni Samgöngufélagsins. Svo sem í könnuninni kemur fram tóku 398 einstaklingar þátt í henni, en hún var öllum opin. Skiptust þeir í hópa eftir búsetu ( íbúar í Vesturbyggð, íbúar á Vestfjörðum utan Vesturbyggðar og íbúar annars staðar). Þá var þeim skipt eftir kyni og loks eftir aldri, (yngri en 25 ára, 25 til 44 ára, 45 ára til 66 ára og 67 ára og eldri). 

Greiða mátti atkvæði á kvarðanum 0 til 6 eftir því hversu andvígur eða hlynntur viðkomandi var þar sem 0 var “mjög andvígur”, 3 var “hvorki né”  og 6 “mjög hlynntur”. Ekki vitað til að könnun sem þessi hafi áður farið fram en ætlunin með henni var að gefa almenningi kost á að lýsa skoðun sinni á í tengslum við mögulegar vegaframkvæmdir við undirbúning aðalskipulags.

Tilgangur Samgöngufélagsins er að stuðla að sem mestum framförum í samgöngum á og við Ísland. Í tengslum við auglýsingu Aðalskipulags Vesturbyggðar 2018 – 2035, stóð félagið, í júní 2021, fyrir könnun um þverun Vatnsfjarðar í Vesturbyggð. Eins og áður kom fram var könnunin unnin af fyrirtækinu ENVALYS að beiðni Samgöngufélagsins. Engum persónugreinanlegum gögnum var safnað í þessari könnun

Niðurstöður voru í sem stystu máli þær að svör þátttakenda við spurningunni  “Almennt séð, hversu andvíg(ur) eða hlynnt(ur) ertu þverun Vatnsfjarðar” hlaut 4,44. Marktækur munur var milli karla og kvenna eða 3,57 meðal kvenna en 4,64 meðal karla en aðeins um 20% þátttakenda voru konur . Ekki var marktækur munur milli aldurshópa en milli búsetuhópa var mest fylgni við þverun meðal íbúa á Vestfjörðum utan Veturbyggðar eða 4,71, þá meðal íbúa í Vesturbyggð eða 4,38 og loks íbúa utan Vestfjarða eða 4,13.

Ýmsan annan fróðleik má lesa úr könnuninni auk þess sem allir gátu tjáð sig um þá tillögu sem kynnt var og má sjá þær athugasemdir allar orðréttar í könnuninni. Verður að telja að líta beri til niðurstöðu þessarar könnunar við frekari undirbúning að ákvörðun um veglínur í Vatnsfirði í tengslum við gerð aðalskipulags Vesturbyggðar.

Þess má geta að af hálfu Samgöngufélagsins voru sendar inn athugasemdir við aðalskipulag Vestfjarða, dags. 24. júní sl., að því er varðar þverun Vatnsfjarðar og má nálgast þær á vef Samgöngufélagsins hér sem og niðurstöður könnunarinnar  https://samgongur.is/vatnsfjordur/ .

Umræða
Share9Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?