• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Fjármálaeftirlitið styður óþarfa ofur hækkanir á bílatryggingum sem eru langt umfram verðlag

ritstjorn by ritstjorn
14. ágúst 2018
in Óflokkað
0
Share on FacebookShare on Twitter

Iðgjöld bílatrygginga hækka með velþóknun Fjármálaeftirlitsins

Iðgjöld bílatrygginga hækka með velþóknun Fjármálaeftirlitsins

Félag íslenskra bifreiðaeigenda segja frá því á síðu sinni að á síðastliðinum fjórum árum hafi iðgjöld lögboðinna ökutækjatrygginga hækkað um 25%. Á sama tíma hafi vísitala neysluverðs hækkað um 7% og verð nýrra bíla lækkað um 13%.
Fréttatíminn fór ofan í saumana á tryggingamálum og bar m.a. saman verð á tryggingum á Íslandi og í nágrannalöndunum fyrr í sumar og birti um það grein og munurinn var heldur betur sláandi. Verðið gat verið helmingi hærra á Íslandi og stundum þrefalt hærra. M.ö.o. Fjölskylda með 2-3 bíla í nágrannalöndunum greiddi jafn mikið og íslensk fjölskylda greiðir fyrir einn bíl. Það eru greinilega önnur markaðslögmál þar en á Íslandi.

,,Fréttatíminn kynnti sér einnig verðmun á bílatryggingum á Íslandi og á norðurlöndunum og þar er algengur munur svo mikill að í nágrannalöndunum er hægt að tryggja 2 til 3 bíla fyrir sömu fjárhæð og fyrir einn á Íslandi.
Það virðist vera þannig þegar að kemur að þessum málum að endalaust er hægt að láta bifreiðaeigendur á Íslandi greiða margfalt meira þegar að kemur að kostnaði varðandi bifreiðar en þekkist annarsstaðar í veröldinni.  Bensín- og tryggingasalar eru mjög samstíga á Íslandi þegar að kemur að okri gagnvart bíleigendum þegar að verð eru borin saman og líta verður til þess í þeim kjaraviðræðum sem að nú standa yfir, þar sem að verðhækkanir hafa ekki verið í neinum takti við launavísitölu. En mikil ólga er í samfélaginu vegna kjaramála og búast má við verkföllum og átökum á vinnumarkaði eins og boðað hefur verið.“ Þetta kom fram í grein FT fyrr í sumar.
Einnig kom fram að á sama tíma og miklar hækkanir voru á bílatryggingum, voru tryggingafélögin að greiða út veglegan arð til eigenda. ,, Á sama tíma eru Tryggingafélög einnig að okra á bíleigendum upp á hundruð prósenta m.v. nágrannalöndin og greiða út háan arð á sama tíma og tryggingar hafa verið að hækka langt umfram verðlag.“ Sagði m.a. í grein FT.
,,Bílum hefur fjölgað og þar með greiddum iðgjöldum. Eknum kílómetrum hefur hins vegar fækkað. Tjónakostnaður hefur lækkað með verðlækkun bíla og varahluta og það vegur uppá móti hækkun slysa-bóta.
Fjármálaeftirlitið er enginn vinur neytenda í þessum efnum. Það lyftir ekki putta til að gera athugasemdir við iðjaldahækkanir.  Þvert á móti hvatti það tryggingafélögin til þess að hækka iðgjöldin árið 2015. Ekki stóð á félögunum að bregðast við þeirri áskorun, eins og raunin sýnir.“ Segir á vef FÍB.

https://gamli.frettatiminn.is/2018/05/11/haar-ardgreidslur-til-hluthafa-tryggingafelaga-sama-tima-og-idgjold-almenning-haekka/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/05/29/island-i-1-saeti-i-heimi-i-okri-a-eldsneyti-tryggingafelog-okra-a-bileigendum-upp-a-hundrud-prosenta/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/05/02/tm-tryggingamidstodin-lang-dyrast-og-vis-odyrast-107-verdmunur-bilatryggingum/

Discussion about this post

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?