• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 29. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

45 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur – Einn á 152 km. hraða

ritstjorn by ritstjorn
14. ágúst 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Lögreglan á Suðurlandi hefur áhyggjur af hraðakstri

,,Það er því miður hætt að heyra til tíðinda að erlendir ökumenn séu stöðvaðir vegna hraðaksturs hér á landi. Gærdagurinn hvað þetta varðar var engin undantekning hjá lögreglunni á Suðurlandi en alls voru 45 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í umdæminu í gær. Stærstur hluti þessara ökumanna voru sem fyrr segir erlendir ferðamenn.
Sá sem hraðast ók var mældur á 152 km hraða á Mýrdalssandi og kvaðst ökumaður hafa gleymt sér þar sem hann hafi verið svo hugfanginn og snortinn af landslaginu. Tveir aðrir ökumenn voru mældir á sviptingarhraða eða 146 og 147 km hraða.
Nær allir ökumenn greiddu sektina á staðnum og ef eingöngu er horft á þá 26 ökumenn sem kærðir voru fyrir hraðakstur á Mýrdalssandi milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs greiddu þeir samtals rúmlega 1,6 milljónir króna í sekt.
Ekki er lengra síðan en síðastliðinn föstudag 9.ágúst að erlendir ferðamenn veltu jeppabifreið sinni á þessum vegarkafla á þjóðvegi 1 í Eldhrauni skammt vestan við Kirkjubæjarklaustur. Valt bifreiðin að minnsta kosti 7 veltur og endaði á hvolfi ofan í hraungjótu og flutti þyrla Landhelgisgæslunnar þá fjóra sem í bifreiðinni voru á slysadeild LSH í Fossvogi.
Ekki er vitað hvort hraðakstur hafi átt þátt í umræddu slysi sem er til rannsóknar hjá embættinu en engin úr slysinu er í lífshættu.
Ef litið er á heildarsektargreiðslu þessara 45 ökumanna sem kærðir voru fyrir hraðakstur í gær hjá embættinu nemur sektarfjárhæðin samtals um 3 milljónir króna.
Lögreglan á Suðurlandi mun hér eftir sem endranær vera virk í hraðaeftirliti í umdæminu ásamt því að kanna ástand ökumanna og með því reyna að draga úr möguleikum á alvarlegum slysum í umferðinni.“

  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Svona getur þú lækkað bankakostnaðinn þinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Kristrún launalaus á Alþingi – Launahækkun ráðamanna verði undir 66 þúsund krónum á mánuði

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?