• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

„Ráðgjafarnefnd Landspítalans mikilvægur bakhjarl“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. september 2018
in Óflokkað
A A
0

„Ráðgjafarnefnd Landspítalans mikilvægur bakhjarl“

Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum í ráðgjafarnefnd Landspítalans - mynd
Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum í ráðgjafarnefnd Landspítalan
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fylgdi úr hlaði fyrsta fundi nýskipaðrar ráðgjafarnefndar Landspítalans sem haldinn var í velferðarráðuneytinu í vikunni.
Svandís lýsti ánægju með að nefndin væri tekinn til starfa, hún myndi verða Landspítalanum mikilvægur bakhjarl og hefði mikilvægu hlutverki að gegna.
Hún sagði einnig mjög mikilvægan þann tilgang með starfsemi nefndarinnar að efla tengsl Landspítalans við þjóðfélagið og möguleika notenda þjónustunnar til að hafa áhrif á starfsemi og þjónustu spítalans. Nánar er fjallað um hlutverk ráðgjafarnefndarinnar í erindisbréfi ráðherra til nefndarinnar.
Ráðgjafarnefndin er skipuð samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu til fjögurra ára. Formaður hennar er Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.
Í nefndinni eru níu aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera forstjóra og framkvæmdastjórn til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans, og fjalla meðal annars um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir spítalans og langtímastefnu hans. Formaður nefndarinnar skal í samráði við forstjóra boða til upplýsinga- og samráðsfunda eftir því sem þurfa þykir og ekki sjaldnar en tvisvar á ári, eins og segir í lögum um hlutverk ráðgjafarnefndarinnar.
Eftirtaldir eiga sæti í ráðgjafarnefndinni:
Aðalmenn

  • Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, formaður
  • Óskar Reykdalsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, varaformaður
  • Jón Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
  • Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
  • Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
  • Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB
  • Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu
  • Vilmundur Guðnason, prófessor og forstöðumaður Hjartaverndar

Varamenn

  • Hjalti Þór Vignisson, fyrrverandi sveitastjóri
  • Sveinn Guðmundsson, formaður Hjartaheilla
  • Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD samtakanna
  • Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar
  • Anna Stefánsdóttir, formaður Spítalans okkar
  • Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
  • Reynir Tómas Geirsson, fyrrum prófessor og fæðingarlæknir
  • Henny Hinz, hagfræðingur ASÍ
  • Andri Snær Magnason, rithöfundur
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?