Þetta er auðvitað galið!
Það er þokkaleg álagning ef verslun kaupir inn mjólkurlítra á 100 kr. en selur á 522 kr. Slíkt væri flokkað sem okur. En hvað með vaxtamun bankanna? Eru bankarnir að okra á fyrirtækjum og einstaklingum?
- Mismunur meðalvaxta bankanna á útlánum og innlánum er eftirfarandi.
Íslandsbanki 4,31% hagnaður fyrstu 6 mán. 9 milljarðar kr.
Landsbanki 3,93% hagnaður fyrstu 6 mán.14,1 milljarður kr.
Arion banki 4,55% hagnaður fyrstu 6 mán.13,9 milljarður kr. - Vegið meðaltal bankanna þriggja:
Meðalvextir innlána 1%
Meðalvextir útlána 5,22%
Vaxtamunur 4,22%.
Samtals hagnaður fyrstu 6 mán. 37 milljarðar kr.
Á tímum veirunnar hafa margar fjölskyldur og fyrirtæki lent í vandræðum, tímabundið, gengið á sparnað og jafnvel tekið yfirdráttarlán.
Á veltureikningum bankanna eru greiddir um 0,05% vextir, ef þú átt pening, en ef þú ferð yfir núllið, tekur yfirdrátt, eru vextir á bilinu 8,3% til 9%.
Þetta er auðvitað galið!
Einhver hefði haldið að bankarnir taki tillit til fordæmalausra aðstæðna í samfélaginu en því fer fjarri. Bankastjóri Landsbankans fylgir sínu uppgjöri úr hlaði í fréttatilkynningu með orðunum: “Góð rekstrarniðurstaða undanfarinna ára gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum betri kjör.”
En eru þetta í raun “betri kjör” almenningi til handa? Það mætti vel lækka vaxtamuninn um 1,25% prósentustig svo hann sé nær því sem gerist í nágrannalöndunum og með því mætti skila 40 milljörðum króna árlega til fyrirtækja og einstaklinga í landinu.
https://gamli.frettatiminn.is/12/09/2021/bankarnir-eina-skipulagda-glaepastarfsemin-a-islandi/